Upplýsingar
8355 m²
0 herb.
Lýsing
Sumarhúsalóð við Suðurheiðarveg 8A í Grímsnesi sem er hluti af Norðurkotslandi. Lóðin er 8.355 m2 eignalóð og heimilt að byggja allt að 240 m2 á lóðinni skv. skipulagi. Aðkoma inn í landið er á þremur stöðum, við Farbraut frá Þingvallavegi og svo við Kóngsveg og Kolgrafarhól frá Biskupstungnabraut. Aðgengi inn á svæðið er stýrt með myndavélavöktuðum hliðum. Svæðið er mjög gróið og hávaxinn trjágróður á lóðum norðanvið þessa lóð, veitir gott skjól fyrir norðanátt. Sunnan lóðarinnar er mýri sem ekki verður byggt á skv. skipulagi og því gott útsýni til suðurs og að Ingólfsfjalli.
Á svæðinu er hitaveita, kalt vatn og rafmagn.
Í næsta nágrenni má finna golfvelli í meðal annars í Öndverðarnesi og Kiðjabergi.
Landeigendafélag er á svæðinu og Innheimt er árgjald í rekstrarsjóð fyrir hús innan hliða, kr. 30 þús. á ári, sem innifelur snjómokstur í kringum helgar þegar þörf er á, minniháttar viðhald á vegum og rekstur hliða og myndavéla. Einnig hefur verið innheimt í framkvæmdasjóð kr. 30 þús. undanfarin ár til að standa straum af m.a. gerð flóttavega út úr hverfinu til austurs.