Lýsing
Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, geymslu og bílageymslu. Heildareignin er skráð hjá Þjóðskrá Íslands 118,3 m2. Stæði í bílageymslu er ekki inni í fermetratölu eignar.
Sýningu á eigninni annast Eggert Maríuson löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala s.690-1472 eða með tölvupósti: eggert@stofnfasteignsala.is
Forstofa er með flísum á gólfi og góðu skápaplássi ásamt upphengi.
Stofa er með parketi á gólfi og þaðan er útgengt á rúmgóðar suðvestursvalir sem svalalokun að hluta og opnum svölum að hluta.
Eldhús er með parketi á gólfi og hvítri innréttingu.
Svefnherbergin eru tvö og eru með parketi á gólfum og skápum í aðalsvefnherbergi, einnig eru þau nokkuð rúmgóð herbergi.
Baðherbergi er með flísum í hólf og gólf, opin sturta, upphengt wc, skúffur undir vask og skápar. Gluggi með opnanlegt fag.
Þvottahús er innan íbúðar í forstofu og er með flísum á gólfi, hillur og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla er innan íbúðar og er með parketi á gólfi og er nýtt sem vinnuaðstaða að hluta og geymsla að hluta.
Stæði í lokaðri bílageymslu og þar er einnig þvottaaðstaða.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.