Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ingibjörg Þórðardóttir
Þórður S. Ólafsson
Ólafur Már Ólafsson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1983
svg
179,1 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Sérinngangur
Opið hús: 18. júní 2026 kl. 16:45 til 17:30

Lýsing

Opið hús fimmtudaginn 18. júní frá kl 16:45 til 17:30 - Kambasel 4, 109 Reykjavík

Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir: 

Falleg og vel skipulagt raðhús á tveimur hæðum í rólegum botnlanga í Seljahverfi í Breiðholti.
Í húsinu eru fjögur svefnherbergi. Bílskúr er áfastur húsinu og að hluta innbyggður í húsið. Ofan á bílskúrnum eru stórar og góðar svalir sem snúa í suðvestur.
Á baklóð hússins er stór timburverönd með skjólveggjum og fallegum gróðri. Stórt geymsluloft er í þakrými/geymslurými, ca 40 fm að gólffleti og er ekki skráð í birta fermatratölu.
Húsið er skráð 179,1 fm (þar af bílskúr 23,7 fm)
 
Hellulagt bílaplan með hitalögnum undir er framan við húsið, stæði fyrir tvo bíla.

Nánari lýsing:
Forstofa
 Flísar á gólfi og fatahengi, sérsmíðuð glerhurð úr Birgisson. Úr forstofu er komið inn í hol sem tengir saman rými neðri hæðarinar, flísar eru á gólfi. Flísar á forstofu og holi eru frá Birgisson.
Baðherbergi er með flísum á veggjum og gólfi, sturtu með glervegg, hvítri innréttingu undir vaski, upphengdu salerni.
Fjögur svefnherbergi eru á neðri hæðinni, þrjú barnaherbergi og hjónaherbergi sem er með útgengi í bakgarð hússins sem er með timburverönd og skjólveggjum. Nýlega endurnýjaðir fataskápar í öllum herbergjum og nýlegt harðparket úr Birgisson er í öllum svefnherbergjum.
 
Gengið um steyptan stiga upp á efri hæð hússins þar sem eru samliggjandi setustofa, borðstofa og eldhús.
Eldhús er stórt með endurnýjaðri HTH innréttingu, hiti í gólfi, stór borðkrókur og gluggar. Flísar á gólfum.
Setustofa er rúmgóð og björt, eikarparket er á gólfum. Úr setustofu er útgengi á stórar svalir sem snúa í vestur og eru ofaná bílskúrnum.
Gestasalerni er á efri hæðinni, nýlega uppgert, flísar eru á gólfi og á veggjum að hluta, upphengt salerni, hvít innrétting undir vaski.
Þvottahús: Inn af eldhúsi er þvottahús með góðri vinnuaðstöðu, innréttingu og glugga.
Geymsla: Stórt geymsluloft yfir allri efri hæðinni sem farið er uppá um fellistiga í lofti úr þvottaherberginu.
Bílskúr: Ekki er innangengt í skúrinn úr húsinu en hefðbundin inngönguhurð er í skúrinn við aðalinngang hússins. Bílskúrinn er með hita, rafmagni og rennandi vatni.

Viðhald/endurbætur. 
Á undanförnum árum hefur eldhús verið endurnýjað, innihurðir endurnýjaðar, raflagnir hússins hafa sömuleiðis verið endurnýjaðar og tafla á efri hæð, nýir fataskápar eru í öllum svefnherbergjum.
Húsið var málað að utanverðu í maí 2026. Hitagrind og þrýstijafnari fyrir húsið hafa einnig nýlega verið endurnýjuð.
Fimm gluggar á suðurhlið hússins hafa verið endurnýjaðir.

Vel staðsett fjölskylduhús efst í botnlanga efst í Seljahverfinu. Seljaskóli, leikskólar, íþrótta- og leiksvæði og verslun eru í göngufæri. 

Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg Þórðardóttir löggiltur fasteignasali í síma 864-8800 / ingibjorg@hibyli.is eða Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali 865-8515 / olafur@hibyli.is
 

Híbýli fasteignasala

Híbýli fasteignasala

Kringlunni 4-6 - 9 hæð, 103 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
28. ágú. 2018
51.300.000 kr.
67.000.000 kr.
179.1 m²
374.093 kr.
28. mar. 2012
31.750.000 kr.
36.000.000 kr.
179.1 m²
201.005 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Híbýli fasteignasala

Híbýli fasteignasala

Kringlunni 4-6 - 9 hæð, 103 Reykjavík
phone