Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Óskar Sigurðsson
Þorsteinn Magnússon
Upplýsingar
svg
347130,9 m²
svg
4 herb.
svg
3 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Aukaíbúð

Lýsing

ÁRBORGIR FASTEIGNASALA 4824800 kynnir í sölu:

Dægra 1 Rangárþingi eystra,
Um er að ræða jörð með nýlegu íbúðarhúsi, tveimur gestahúsum, hesthúsi / fjárhúsi með stíum, hestaskýli og fleiri byggingum. Ljósleiðari kominn inn í íbúðarhús. 3ja fasa rafmagn. Samkvæmt þjóðskrá er húsakostur 130,9fm, hinsvegar eru nokkuð sem ekki er skráð inn í fermetratölu. Jörðin er skráð 34,7 hektarar.

Nánari lýsing:
Íbúðarhús skráð 30,5 fm. Byggt 2017 úr timbri, það er klætt að utan með bárujárni, bárujárn er á þaki. Að innan skiptist eignin í forstofu sem er köld og byggð við. Parket er á gólfi í alrými. Baðherbergi með sturtu og salerni, herbergi, eldhús og risloft. Undir húsinu er steyptur kjallari þar sem lofthæð er u.þ.b 185 cm sem er ekki inni í fermetratölu. Við húsið er gestahús/geymsla.
Tvö 15 fm gestahús eru á lóðinni og er fínn sólpallur við hvort þeirra. Þau eru parketlögð, með baðherbergi.
Hesthús/fjárhús er 70,4 fm auk viðbyggingar. Þar er steypt gólf, stíur, loft er ekki fullfrágengið. Inn í þá skráningu vantar viðbyggingu.
Á lóðinni eru 2 stórar geymslur og 2 minni sem og gróðurhús. Þessi hús eru óskráð.

Nánari upplýsingar og bókið skoðun á skrifstofu Árborga.
arborgir@arborgir.is eða í síma 482-4800.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er: 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% fyrir fyrstu kaupendur og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. kr. 3.800,- hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda skv. gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Seljandi eignaðist fasteignina í skuldaskilum og hefur aldrei haft starfsemi eða afnot af eigninni. Seljandi þekkir ekki eignina umfram það sem fram kemur í opinberum gögnum, því leggur seljandi ríka áherslu á  það við kaupanda að hann gæti sérstakrar árverkni við skoðun og úttekt á eigninni og veitir seljandi eða fasteignasali kaupanda allan nauðsynlegan aðgang að til þess. Eignin selst í því ástandi sem hún var við skoðun á tilboðsdegi og kaupandi hefur kynnt sér gaumgæfilega og sættir sig við að öllu leiti.
 

Árborgir fasteignasala

Árborgir fasteignasala

Austurvegi 6, 800 Selfossi.
phone
Árborgir fasteignasala

Árborgir fasteignasala

Austurvegi 6, 800 Selfossi.
phone