Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ólafur Björnsson
Vista
lóð

Flókastaðir 0

861 Hvolsvöllur

69.000.000 kr.

137 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2193635

Fasteignamat

38.889.000 kr.

Brunabótamat

106.760.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
502754 m²
svg
0 herb.
svg
Bílskúr

Lýsing

Um er að ræða 40% eignarhluta, í óskiptri sameign, í jörðinni Flókastöðum í Fljótshlíð, Rangárþingi eystra Fnr. 219-3635, lnr. 164009, póstnúmer 816 Hvolsvöllur

Flókastaðir eru lögbýli staðsett í afar fallegri sveit. Jörðin er á frábærum útsýnisstað í Fljótshlíðinni. Akstursfjarlægð frá Hvolsvelli er um það bil átta mínútur. Á jörðinni er eldri húsakostur, sem segja má að sé allur barn síns tíma.
Landstærð jaðarinnar í heild er talin vera um 125 hektarar, þar af ræktað land samkvæmt þjóðskrá um 35 hektarar. 
Jörðin er án bústofns véla og án framleiðsluréttar.

Flókastaðir er í eigu 16 aðila og hyggjast 8 aðilar selja eignarhluta sinn í óskiptri sameign Flókastaða. Eignarhald Flókastaða er bundin nokkurri kvöð en þeir aðilar sem ekki hafa eignarhlut sinn á sölu hér eru bundnir þeirri kvöð að geta ekki selt, gefið eða afsalað eignarhluta sínum í jörðinni nema til skyldfólks síns. Umbjóðendur okkar eru þó ekki bundnir slíkri kvöð og hafa því tekið þá ákvörðun að selja hluta sinn í jörðinni.
 
Eignarhlutur umbjóðenda okkar er þó bundin þeirri kvöð að núverandi eigendur eiga forkaupsrétt á þann eignarhluta sem til sölu er og hafa því kost á að ganga inn í þau tilboð sem kunna að berast og verða samþykkt.
 
Tilvalið tækifæri fyrir aðila sem vill eignast hluta í flottri jörð í Rangarárþingi Eystra.

Nánari upplýsingar veita Ólafur Björnsson, lögmaður og löggiltur fasteignasali oli@olafur.is - s: 416 2220 - gsm: 894 3209  eða Kristófer Ari Te Maiharoa, lögfræðingur og nemi til löggildingar fasteignasala kristo@olafur.is s: 416-2223, gsm: 695 6134

Lögmannsstofa Ólafs Björnssonar

Lögmannsstofa Ólafs Björnssonar

Eyrarvegi 15, 800 Selfoss
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
16. okt. 2024
38.889.000 kr.
9.000.000 kr.
0 m²
-
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Lögmannsstofa Ólafs Björnssonar

Lögmannsstofa Ólafs Björnssonar

Eyrarvegi 15, 800 Selfoss
phone