Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Þóra Birgisdóttir
Vista
hæð

Stuðlaskarð 15

221 Hafnarfjörður

108.900.000 kr.

789.130 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2510481

Fasteignamat

93.850.000 kr.

Brunabótamat

90.350.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2021
svg
138 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Esja Fasteignasala og Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali kynna nýlega eign í einkasölu; Stuðlaskarð 15 í Hafnarfirði er lítið fjölbýlishús byggt árið 2021 af byggingafélaginu Bygg. Í húsinu eru 4 íbúðir, góð aðkoma, tvö bílastæði fylgja hverri eign.
Um er að ræða rúmgóða 4ra herbergja íbúð á 1. hæð með sér afnotareit í suður. Eignin er skráð 138 fm. skv. fasteignaskrá HMS, þar af er geymslan 11,8 fm.
Íbúðin skiptist í forstofu, rúmgott, opið eldhús og stofur, 3 svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús innan íbúðar auk geymslu á sömu hæð.
Nánari lýsing;
Komið er inn í rúmgóða forstofu með fataskápum meðfram heilum vegg sem ná alveg upp í loft.
Stórt og opið alrými, tæpir 50 fm., rúma vel opið og vel búið eldhús, borðstofu og setustofu.
Eldhús er með spónlagðri innréttingu með Stonel Christal Chite náttúrusteini á bekk og eyjunni, góðu skúffu- og hirsluplássi og veglegri eyju með skúffum og skápum beggja vegna. Sérlega vönduð eldhústæki frá Siemens og AEG telja m.a. tvo ofna, innbyggða uppþvottavél, span-helluborð, ca 90 cm breitt.
Stofurnar eru rúmgóðar og bjartar enda gluggar á tvo vegu. Út frá borðstofunni er gengið út stóran og afgirtan pall með góðum skjólveggjum sem snýr í s-vestur.
Á svefnherbergisgangi eru 3 herbergi;
Rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskápum og tvö önnur herbergi bæði rúmir 10 fm. að stærð með góðum fataskápum.
Baðherbergi er flísalagt með stórum "walk-in" sturtuklefa, innbyggðum blöndunartæjum, upphengdu salerni, handlaug, innréttingu og skáp ásamt handklæðaofni.
Þvottahús er flísalagt með innréttingu og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Á gólfum er harðparket fyrir utan flísalögð votrými og forstofu, innréttingar eru frá Brúnás og náttúrusteinn í eldhúsi frá S. Helgasyni.
Á hæðinni er stór geymsla (11,8 fm)  sem eigninni fylgir, þar er gluggi, rafmagnstengi og hillur.
Á jarðhæð er rúmgóð sameiginleg geymsla m.a. fyrir hjól og vagna, gott aðgengi frá lóðinni og jarðhæð hússins.
Húsið er klætt viðhaldsléttri klæðningu, lóðin umhverfis húsið er fullbúin sem og rúmgott bílastæði fyrir framan húsið þar sem búið er að draga í rafmagn og auðvelt að setja upp hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl.
Þetta er vönduð eign í fjölskylduvænu um hverfi þar sem stutt er í fallega náttúru.
Allar frekari upplýsingar veitir Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali í s. 777-2882 eða thora@esjafasteignasala.is
 


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Esja fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

img
Þóra Birgisdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Esja fasteignasala
Sundagörðum 2, 104 Reykjavík

Esja fasteignasala

Sundagörðum 2, 104 Reykjavík
phone
img

Þóra Birgisdóttir

Sundagörðum 2, 104 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
26. nóv. 2021
55.900.000 kr.
78.900.000 kr.
138 m²
571.739 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Esja fasteignasala

Sundagörðum 2, 104 Reykjavík
phone

Þóra Birgisdóttir

Sundagörðum 2, 104 Reykjavík