Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Aðalheiður Karlsdóttir
Vista
fjölbýlishús

SPÁNAREIGNIR Torrevieja miðbær

953 Spánn - Costa Blanca

43.300.000 kr.

420.388 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F3090107

Fasteignamat

0 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
103 m²
svg
3 herb.
svg
2 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta

Lýsing

SPÁNAREIGNIR KYNNIR: *NÝLEGAR ÍBÚÐIR Í HJARTA TORREVIEJA* *GÖNGUFÆRI Á STRÖND* *SAMEIGINLEG SUNDLAUG* *STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU OG SÉR GEYMSLA GEGN AUKA GJALDI*

Nýjar 3ja og 4ra herb. íbúðir á frábærum stað. Vandaðar íbúðir með glæsilegri sameign, á þaki hússins er að finna sameiginlega sólbaðsaðstöðu og sundlaug. Íbúðirnar eru sérlega vel staðsettar þar sem strönd og mannlíf eru í göngufæri. Einstakt tækifæri til að eignast góða íbúð á frábæru verði á besta stað í miðborg Torrevieja. 

Allar upplýsingar veita:
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is, sími 0034 615 112 869
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is.sími 893 2495

Nánari lýsing:

Gengið er inn í forstofu og þar á vinstri hönd er baðherbergi. Gengið er inn gang í átt að stofu og á hægri hönd er gengið inn í 2 svefnherbergi með fataskápum og á milli þeirra er baðherbergi. Innst í íbúðinni er gengi inn í opið rými með borðstofu, eldhúsi og stofu. Úr stofu er útgengt á góðar 26 fm svalir sem snúa í vestur.

Á þaki hússins er sameiginleg sundlaug, sólbaðsaðstaða og salerni.

Byggingin er vel staðsett í hjarta Torrevieja, með alla þjónustu, verslanir, matarmarkaði og veitingastaði rétt við þröskuldinn. Stutt göngufæri á ströndina, og promenaði meðfram ströndinni, götumarkaður sem er opinn allt árið og margt fleira skemmtilegt. 

Verð á 3ja herb. íbúð frá 299.000 Evrur. + kostn. (43.300.000 ISK miðað við gengi 1E=145ISK)

Möguleiki á stæði í bílageymslu og sér geymslu gegn auka gjaldi. 

Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með hagstæðu láni frá spænskum banka.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: ný eign, svalir, air con, sundlaug, strönd, miðbær,
Svæði: Costa Blanca, Torrevieja,

img
Aðalheiður Karlsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Spánareignir
Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.
img

Aðalheiður Karlsdóttir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Aðalheiður Karlsdóttir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.