Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Björn Guðmundsson
Berglind Jónasardóttir
Greta Huld Mellado
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2005
svg
138,2 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr

Lýsing

    

Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala

Arnarsíða 5

Falleg fjögurra herbergja raðhúsaíbúð á einni hæð með sambyggðum bílskúr, góð skjólsæl verönd vestan við hús. Eignin er skráð samtals 138,2 fm. að stærð þar af er bílskúr 25 fm. 


Íbúðin skiptist í forstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, stofa og eldhús í opnu rými, þvottahús, bílskúr og geymsla. 

Forstofa með flísum á gólfi. 
Svefnherbergin eru þrjú, öll eru þau með parket á gólfum og skápar eru tveimur þeirra, stór skápur með rennihurðum í hjónaherbergi. Úr hjónaherbergi er útgengi út á verönd.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, baðkar með sturtutækjum og glervæng, innrétting við vask ásamt góðum skáp, upphengt wc, handklæðaofn og lítill opnanlegur gluggi. 
Stofa og eldhús í opnu rými með parket á stofurými og flísar á eldhúsrými. Góð innrétting í eldhúsi með gashelluborði, bakaraofn í vinnuhæð, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél sem fylgja. Gott skápapláss í eldhúsi. Eyja með góðu vinnurými, skúffur og skápar í eyjunni. Úr alrými er útgengi út á verönd. 
Þvottahús með flísum á gólfi er milli íbúðar og bílskúrs, innrétting með stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Auka inngangur um þvottahús og einnig innangengt í bílskúr í gegnum þvottahús. 
Bílskúr er flísalagður, rafknúinn hurðaopnari og innaf bílskúrnum er geymsla. Úr geymslunni er gengið út á verönd.
Framan við hús er ruslatunnuskýli og hellulögð verönd með timbur skjólveggjum. 

Annað:
- Stutt í leik- og grunnskóla.
- Hiti er í öllum gólfum 
- Hiti í malbikuðu bílaplani framan við bílskúr og steyptum stéttum framan við hús. 
- Góð steypt verönd vestan við hús með markísu og garður þar fyrir utan. 
- Ljósleiðari 
- ATH. heitur pottur á verönd og pottastýring fylgir ekki. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 

Frekari upplýsingar:
bjorn@byggd.is
greta@byggd.is
olafur@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 


 

Byggð fasteignasala

Byggð fasteignasala

Skipagata 16, 600 Akureyri
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
24. jún. 2019
42.900.000 kr.
55.500.000 kr.
138.2 m²
401.592 kr.
11. nóv. 2009
23.830.000 kr.
28.900.000 kr.
138.2 m²
209.117 kr.
30. júl. 2007
21.210.000 kr.
28.000.000 kr.
138.2 m²
202.605 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggð fasteignasala

Byggð fasteignasala

Skipagata 16, 600 Akureyri
phone