Lýsing
Stutt er í leik-, grunn- og framhaldsskóla. Sundlaugin í efra-Breiðholti er steinsnar í burtu ásamt Fella- og Hólakirkju og verslunarkjarnanum Hólagarði þar sem er m.a. að finna Apótek, Bónus, Pizzuna, Domino's, Klipp-Art hárstofu o.fl.
Sýningu á eigninni annast Eggert Maríuson löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala s.690-1472 eða með tölvupósti: eggert@stofnfasteignasala.is
Forstofa er með dúkflísum á gólfi og opnu skápaplássi.
Stofa er með parketi á gólfi og þaðan er útgengt á austursvalir.
Eldhús er með parketi á gólfi og viðarinnréttingu.
Svefnherbergi er með parketi á gólfi og skápum.
Baðherbergi er með dúkflísum á gólfi, baðkar með sturtu, wc, vaskur og speglaskápur, skápur og þvottavél.
Þvottahús á baðherbergi.
Geymsla er innan íbúðar og nýtt sem herbergi og þar er teppi á gólfi og gluggi. Íbúðinni fylgir einnig lítill sér geymsluskápur í sameign á jarðhæð. Í sameigninni er salernisaðstaða ásamt hitakompu sem inniheldur alla hitamæla hússins.
Hjóla- og vagnageymsla í sameign á jarðhæð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.