Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Jóhannes E. Levy
Vista
fjölbýlishús

Þverholt 9

270 Mosfellsbær

99.900.000 kr.

644.101 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2085012

Fasteignamat

91.550.000 kr.

Brunabótamat

84.600.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1990
svg
155,1 m²
svg
7 herb.
svg
1 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Laus strax

Lýsing

Sleipnir fasteignasala kynnir:  Stór og vel skipulögð SJÖ herbergja íbúð á efstu hæð í reisulegu fjölbýli að Þverholti 9 í Mosfellsbæ, hæð og ris - með flottu útsýni.

Miklum framkvæmdum utanhúss er nýlokið:  Málað að utan núna í sumar eftir múrviðgerðir, skipt um gler að hluta og gluggar málaðir.  Einnig stutt síðan þakið var tekið í gegn og skipt var um pappa og bárujárn.  Mjög gott ástand á húsinu að utan eftir miklar endurbætur - eignin getur verið laus við kaupsamning.

Eignin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, rúmgott eldhús, þvottahús, baðherbergi, stofu og borðstofu sem er allt á þriðju hæð.  Uppi um stiga úr stofu er gott sjónvarpshol og þrjú svefnherbergi.  Auðvelt er að gera sjötta herbergið á kostnað stofu á þriðju hæð ef fólk vill.  Íbúð, merkt 01-0301, birt stærð eignar er 155,1 m2 hjá HMS. 

NÁNARI LÝSING:
Neðri hæð:  Gengið er inn í forstofu með flísum á gólfi og góðum fataskáp.  Þar við eru 2 svefnherbegi með dúk á gólfi og fataskáp. Eldhúsið er stórt og bjart með ljósri innréttingu, tveimur útsýnisgluggum, borðkrók og gegnheilu eikarparketi á gólfi.  Inn af eldhúsinu er svo þvottahúsið dúklagt.  Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með ljósri innréttingu með handlaug, salerni og baðkari.  Stofan og borðstofan eru samliggjandi og bjartar þar sem hátt er til lofts, parketlagt með gegnheilli eik og útgengi á svalir (6,4 m2) sem snúa til suðvesturs.   Íbúðarareign á 3. hæð telst 104,1 m2 og 4. hæð 51,0 m2.
Efri hæð.  Þegar komið er upp á efri hæð er gott sjónvarps og alrými parketlagt með gegnheilli eik, úr alrýminu er gengið inn í þrjú svefnherbergi; eitt stórt með dúk á gólfi og tvö minni með gegnheilli eik á gólfum og Velux þakgluggum.  
Á stigagangi fyrir framan íbúðina er sérgeymsla svo er hjólageymsla í sameign á jarðhæð ásamt sorpgeymslu.

Sameign er snyrtileg með nýju teppi á stiganum og nýlega málað.  Fallegt útsýni er m.a. til Esjunnar, og Fellanna í næsta nágrenni.

Vel skipulögð og fjölskylduvæn eign á góðum stað, þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla & íþróttir, heilsugæslu o.s.frv.

Allar nánari upplýsingar veitir
Jóhannes E. Levy, Löggiltur fasteignasali, í síma 7721050 eða tölvupósti

img
Jóhannes E. Levy
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Sleipnir Fasteignasala
Korngörðum 5, 104 Reykjavík

Sleipnir Fasteignasala

Korngörðum 5, 104 Reykjavík
img

Jóhannes E. Levy

Korngörðum 5, 104 Reykjavík

Sleipnir Fasteignasala

Korngörðum 5, 104 Reykjavík

Jóhannes E. Levy

Korngörðum 5, 104 Reykjavík