Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ingólfur Geir Gissurarson
Heiðar Friðjónsson
Snorri Snorrason
Óskar H. Bjarnasen
Snorri Björn Sturluson
Elín Alfreðsdóttir
Gylfi Þór Gylfason
Vista
fjölbýlishús

Brautarholt 20

105 Reykjavík

53.900.000 kr.

921.368 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2518945

Fasteignamat

54.050.000 kr.

Brunabótamat

33.750.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1953
svg
58,5 m²
svg
1 herb.
svg
1 baðherb.
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta

Lýsing

Vandaða og vel skipulagða stúíóíbúð á 3. hæð í uppgerðu lyftuhúsi í grennd við miðbæ Reykjavíkur. Íbúðin er skráð 54,1 fm hjá HMS og geymslan 4,4 fm, samtals 58,5 fm.  Svalir snúa í suður og vísa út í portgarð hússins sem er einungis aðgengilegur fyrir íbúa hússins. Þar er að finna veglega sameign með fundar og eða veislusal, fullbúnu þvottahúsi og hjóla- og vagnageymslu. Garðurinn er einstaklega skjólgóður og sólríkur. 

Bókið skoðun hjá Hrafnhildi Björk Baldursdóttur í síma 862-1110 eða hrafnhildur@valholl.is 
eða hjá Óskari H. Bjarnasen lgf. í síma 691-1931 eða oskar@valholl.is


Nánari lýsing:
Íbúðin skiptist í alrými með eldhúsinnréttingu og baðherbergi. Eignin er fullbúin með gólfefnum, raftækjum og innbyggðu rúmi.
Við hönnun íbúðarinnar var nýting rýmis höfð að leiðarljósi. Íbúðinni fylgir innbyggt rúm, svokallað Murphy Bed sem á einfaldan hátt fellur að vegg ásamt góðri rúmdýnu. Innréttingar og skápar eru frá HTH. Eldhúsinnrétting með grárri mattri áferð, innbyggðri uppþvottavél, ísskáp og keramik helluborði. Gólfefni eru hágæða vínilparket frá Gólfefnavali. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með vönduðum ítölskum flísum og með innréttingu frá HTH, walk-in sturta. 

Húsgjöld eru nú 23.017 kr. á mánuði.

Við endurgerð hússins var leitast við að halda klassískum sjarma um leið og vistaverur eru hannaðar með umhverfi og nútímalífsstíl að leiðarljósi. 

Um er að ræða frábæra eign með góðu skipulagi á besta stað í jaðri miðborgarinnar rétt ofan við Hlemm. 

Eignin er í útleigu með 3ja mánaða uppsagnarfresti.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á. 

Forsendur söluyfirlits:   
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
 

img
Óskar H. Bjarnasen
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Valhöll fasteignasala
Síðumúla 27, 108 Reykjavík
Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone
img

Óskar H. Bjarnasen

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone

Óskar H. Bjarnasen

Síðumúla 27, 108 Reykjavík