Lýsing
Eignin saman stendur af forstofu, eldhúsi, stofu, einu svefnherbergi, baðherbergi, og svölum. Í kjallara er sér geymsla, sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi, og hjóla- og vagnageymsla.
Íbúðin getur verið laus við kaupsamning.
Nánari lýsing eignar:
Forstofa er með flísar á gólfi og tengir öll rými saman
Eldhús hefur flísar á gólfi og ágæta upprunalega eldhúsinnréttingu
Stofa er rúmgóð með parketi á gólfi og útgengt á svalir
Svefnherbergi er rúmgott með parket á gólfi og opinn fataskáp
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Upphengt klósett, handklæðaofn og netta innréttingu.
Íbúðin er að mestu leyti öll upprunanleg en vel skipulögð og býður upp á ýmsa möguleika.
Húsið er í góðu ástandi og hefur það fengið gott viðhald, úti sem inni. Sameign er snyrtileg og er nýbúið að skipta um teppi í sameign, mála og fleira.
Húsið er með tvo innganga, einn að framanverðu og annan að aftanverðu.
Íbúðin er mjög vel staðsett í Hólahverfinu, stutt er í skóla, leikskóla, íþróttamiðstöð, sundlaug og verslanir. Örstutt í náttúruperluna Elliðaárdal.
Nánari upplýsingar veitir Þorbjörn Geir Ólafsson Löggiltur fasteignasali, í síma 895-5198, tölvupóstur bjossi@trausti.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.