Opið hús: Kársnesbraut 53, 200 Kópavogur, Íbúð merkt: 01 02 01. Eignin verður sýnd mánudaginn 27. júlí 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Skipulag íbúðar: Anddyri, stofa og eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, pallur í bakgarði sem snýr til suðurs.
Nánari lýsing:
Anddyri með parketi á gólfi.
Stofa með parketi á gólfi, gengið út á pall sem snýr í suður.
Eldhús er rúmgott og opið með parketi á gólfi. Þvottavél innbyggð í innréttingu og skáphurð fyrir. Fallegt útsýni.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi og stórum fataskáp.
Barnaherbergi með parketi á gólfi.
Baðherbergi með sturtu. Flísalagt í hólf og gólf.
Geymsla er á jarðhæð og er 4,8 fm.
Sameiginleg hitakompa.
Harðparket er á öllum gólfum nema í baðherbergi þar eru flísar.
Endurbætur í séreign:
2016: Skipt um eldhúsinnréttingu,nýjar innihurðir, nýtt parket og gólflistar.
2016: Rafmagnstenglar og rofar endurnýjaðir.
2016: Nýjar ofnalagnir, frá grind í ofna.
2016: Tveir nettenglar í stofunni settir upp og í báðum svefnherbergjum.
2020: Nýtt gler og listar í glugga í eldhúsi.
2023: Sandblástursfilmur settar neðst í glugga sem snúa út að götu.
Endurbætur í sameign:
2020: Skipt um þrýstijafnara í lagnagrind.
2020: Nýtt gler og listar í glugga í sameign/stigagang.
2020: Múrviðgerðir að utan.
2021: Húsið málað að utan.
2025: Þak pússað og ryðvarið. Þakrennur hreinsaðar og frárennsli bætt.
2026: Nýjar eldvarnarhurðir að öllum íbúðum.
Fyrirhugaðar framkvæmdir í sameign:
2026: Skipta um teppi í stigagangi og mála. Til í hússjóði fyrir framkvæmdunum.
Allar nánari upplýsingar veitir Jason Kristinn Ólafsson, jason@betristofan.is í síma 7751515
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.