Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Vista
raðhús

Víðidalur 24

260 Reykjanesbær

91.900.000 kr.

658.781 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2516084

Fasteignamat

86.100.000 kr.

Brunabótamat

81.100.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2022
svg
139,5 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
Opið hús: 19. ágúst 2026 kl. 18:40 til 19:10

Opið hús: Víðidalur 24, 260 Reykjanesbær. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 19. ágúst 2026 milli kl. 18:40 og kl. 19:10.

Lýsing

Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Lifum Heima fasteignasala kynna:

Nýlegt og vandað raðhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr, sólpalli, rúmgóðu alrými og fallegum garði ásamt góðum geymsluskúrá lóð.

Eign sem höfðar til breiðs kaupendahóps:
  • fyrstu kaupendur
  • þá sem eru að minnka við sig
  • eldri kaupendur sem vilja eign á einni hæð eða jarðhæð
  • litlar fjölskyldur
  • fólk sem vill lítið viðhald
  • fólk sem er með gæludýr
Hjarta heimilisins er bjart og opið alrými þar sem eldhús, borðstofa og stofa tengjast á náttúrulegan hátt. Miðpunktur alrýmis er svo stór eldhúseyja með miklu geymslu- og vinnuplássi. Gott rými til að sitja, auðvelt hvort sem er að taka á móti gestum eða njóta morgunbollans við upphaf hvers dags.

Eigendur eru fluttir erlendis, er því íbúðin tóm og afhendist við kaupsamning.

** BÓKIÐ SKOÐUN **
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali / s. 899 0720 / hrannar@lifumheima.is

Þessi raðhús voru byggð 2022 af byggingarfyrirtækinu Sparra ehf., sem er vel þekkt fyrirtæki á suðurnesjum með 30 ára viðskiptasögu og eigendur þess þekktir af góðu handverki (sjá nánar með að klikka hér)

Húsið er með vönduðum innréttingum frá HTH sem skapa tímalaust og fallegt yfirbragð.

Innangengt er úr andyri íbúðar inn í bílskúrinn sem auðveldar daglegt líf allt árið. Bílskúrinn er með rafdrifinni bílskúrshurð, máluðum gólfum og skolvaski.

Eignin er í dag með tveimur svefnherbergjum en auðvelt er að bæta aukaherbergi við með því að taka rými af bílskúrshluta.

Frá stofu og úr öðru svefnherberginu er útgengt skjólgóðan sólpall móti suðri. Fyrir framan pallinn er sérafnotareitur með grasi og geymsluskúr (9,5 fm að stærð) sem nýtist vel fyrir grill og útivistarbúnað.

Samanstendur húsið af 101,7 fm nýlegu raðhúsi ásamt 28,3 fm innbyggðum bílskúr og til viðbótar er geymsluskúr á lóð um 9,5 fm, samtals er því stærð eignar alls 139,5 fm. 


Eignin er í rólegu og fjölskylduvænu hverfi með leikskóla, grunnskóla ásamt allri helstu þjónustu í göngufjarlægð. Náttúran er jafnframt rétt handan við hornið.

Nánari upplýsingar veita:
Hrannar Jónsson löggiltur fasteignasali / s.899-0720 / hrannar@lifumheima.is
Lifum heima fasteignasala / s.463 3333 / lifumheima@lifumheima.is

Lifum Heima Fasteignasala

phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
6. jún. 2023
62.700.000 kr.
78.900.000 kr.
130 m²
606.923 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Lifum Heima Fasteignasala

phone