Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
fjölbýlishús

Austurbrú 14 íbúð 107

600 Akureyri

71.100.000 kr.

919.793 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2531321

Fasteignamat

58.650.000 kr.

Brunabótamat

50.850.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2024
svg
77,3 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta

Lýsing

Austurbrú 14 íbúð 107 - Glæsileg tveggja herbergja íbúð á fyrstu hæð í nýbyggingu - Stærð 77,3 m²
Nánari upplýsingar veitir Sigurður H. Þrastarson, siggithrastar@kaupa.is, 888-6661.
Hvammur fasteignasala 466-1600


Smelltu hér til að skoða lausar íbúðir og verkefnið.

Komið er inn í bjarta og opna forstofu með góðum skápum. Frá forstofu er útgengt út á verönd til vesturs.
Eldhúsið er opið og vel skipulagt í L-lögun með vandaðri eldhúsinnréttingu, kvartssteini á borðplötum og innfelldum vaski. Spanhelluborð og bakaraofn í vinnuhæð auka þægindi við matargerð. Allar skúffur og skápar eru með ljúflokum og innfelld lýsing frá Lumex skapar fallega stemningu.
Stofa og borðstofa mynda bjart og rúmgott alrými með útgengi út á svalir til austurs með útsýni á Pollinn.
Hjónaherbergið er rúmgott og með góðum fataskápum.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf og einstaklega snyrtilegt. Þar er sturta með glerskilrúmi, falleg innrétting frá Parka með kvartssteini á borðplötu og upphengt salerni. Þá er einnig góður skápur fyrir þvottavél og þurrkara með borðplötu úr kvartssteini yfir.
Sérgeymsla í sameign, 6,8 m².

Allar innréttingar, innihurðir, skápar og Electrolux eldhústæki eru frá Parka. 
Blöndunar- og hreinlætistæki eru frá Tengi.
Íbúðinni er skilað fullbúinni en án gólfefna.

Sameign er með glæsilegra móti, þar sem komið er inn í rúmgott anddyri. 
Flísar á gólfi frá kjallara og upp á pall fyrstu hæðar. Frá fyrstu hæð eru stigagangarnir teppalagðir.  

Innangengt úr hverjum stigagangi niður í lokaða bílageymslu og úr bílageymslunni er innangengt fyrir eigendur íbúða í Austurbrú 10-18 inn á Skáld Hótel. 
Eigendur geta nýtt sér þjónustu hótelsins, þar má nefna morgunmat, þvottaþjónustu og líkamsrækt.

Eigninni er skilað skv. skilalýsingu verktaka.
Kaupandi greiðir skipulagsgjald 0,3% af brunabótamati þegar það leggst á eignina.
Arkitektar: THG arkitektar
Verktaki: JE Skjanni ehf.
 

Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone