Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
fjölbýlishús

Austurbrú 10 íbúð 102

600 Akureyri

65.200.000 kr.

939.481 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2531316

Fasteignamat

53.850.000 kr.

Brunabótamat

46.450.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2024
svg
69,4 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta

Lýsing

Austurbrú 10 íbúð 102 - Glæsileg tveggja herbergja íbúð á fyrstu hæð í nýbyggingu - Stærð 69,4 m²
Nánari upplýsingar veitir Sigurður H. Þrastarson, siggithrastar@kaupa.is, 888-6661.
Hvammur fasteignasala 466-1600


Komið er inn í bjart og opið anddyri með góðum fataskáp.
Frá anddyrinu tekur við rúmgott alrými þar sem eldhús, borðstofa og stofa mynda samfellda og glæsilega heild. Eldhúsið er sérlega vandað með fallegri innréttingu, kvartsborðplötum og innfelldum vaski. Spanhelluborð er í eldhúseyju sem myndar skemmtilega miðju rýmisins og býður upp á góða vinnuaðstöðu. Bakaraofn er staðsettur í þægilegri vinnuhæð og allar skúffur og skápar eru með ljúflokum.
Fyrir framan eldhúseyjuna er björt stofa og borðstofa með góðu plássi fyrir setu- og borðkrók. Þaðan er útgengt á verönd til suðurs sem nýtur góðrar birtu og skjóls.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum fataskápum og glugga sem veitir góða dagsbirtu.
Baðherbergið er glæsilega frágengið og flísalagt í hólf og gólf. Þar er rúmgóð sturta með glerskilrúmi, falleg baðinnrétting frá Parka með kvartsborðplötu og upphengt salerni. Einnig er sérhannaður skápur fyrir þvottavél og þurrkara með kvartsborðplötu sem nýtist vel sem vinnu- og geymslupláss.
Innfelld lýsing frá Lumex setur glæsilegan svip á íbúðina og undirstrikar vandaðan frágang hennar.

Íbúðinni fylgir sérgeymsla, 8,9 m², í sameign. 

Allar innréttingar, innihurðir, skápar og Electrolux eldhústæki eru frá Parka. 
Blöndunar- og hreinlætistæki eru frá Tengi.
Íbúðinni er skilað fullbúinni með vönduðu niðurlímdu parketti.

Sameign er með glæsilegra móti, þar sem komið er inn í rúmgott anddyri. 
Flísar á gólfi frá kjallara og upp á pall fyrstu hæðar. Frá fyrstu hæð eru stigagangarnir teppalagðir.  

Innangengt úr hverjum stigagangi niður í lokaða bílageymslu og úr bílageymslunni er innangengt fyrir eigendur íbúða í Austurbrú 10-18 inn á Skáld Hótel. 
Eigendur geta nýtt sér þjónustu hótelsins, þar má nefna morgunmat, þvottaþjónustu og líkamsrækt.

Eigninni er skilað skv. skilalýsingu verktaka.
Kaupandi greiðir skipulagsgjald 0,3% af brunabótamati þegar það leggst á eignina.
Arkitektar: THG arkitektar
Verktaki: JE Skjanni ehf.
 

Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone