Lýsing
Fallegt sumarhús við Þingvallavatn á 5.000 fm eignarlóð með góðu útsýni. Húsið er skráð samkvæmt HMS 55,2 fm að stærð og þar af er einangruð geymsla sem er 10,6 fm. Gott aðgengi er að vatninu. Aðalhúsið var byggt árið 1992 og geymslan árið 2000.
Nánari upplýsingar veitir Jens Magnús lgf. í síma 893-1984 eða á netfanginu magnus@eignaland.is.
Nánari lýsing:
Forstofa er með góðu skápaplássi.
Svefnherbergi eru tvö í húsinu, þar af er annað þeirra rúmbetra.
Baðherbergi er með lítilli innréttingu, sturtuklefa og salerni.
Alrými samanstendur af stofu og eldhúsi með uppteknu lofti.
Stofan er með kamínu og útgengi út á stóran pall.
Eldhúsið er með innréttingu, helluborði og uppþvottavél.
Svefnloft er rúmgott með opnanlegum glugga.
Geymslan er rúmgóð með parketi á gólfi. Þar er tengi fyrir þvottavél.
Flísaparket er á gólfum.
-Stór pallur er við húsið með skjólgirðingu.
-Góð aðkoma er að húsinu og næg bílastæði.
-Lokað svæði með rafmagnshliði.
-Talsverðum trjágróðri hefur verið plantað á lóðina.
-Árgjald í félag sumarhúsaeigenda á svæðinu er um 30.000 kr.
-Allt innbú getur fylgt með í kaupunum.
Allar nánari upplýsingar og bókanir í skoðun eru hjá fasteignasla:
Jens Magnús Jakobsson, sími 893-1984 eða magnus@eignaland.is
***Vegna mikillar sölu undanfarið get ég bætt við eignum á skrá***
***Kem og verðmet þína eign þér að kostnaðarlausu***
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignaland fasteignasla bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda samkvæmt gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.