Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2006
135,1 m²
4 herb.
1 baðherb.
3 svefnh.
Bílskúr
Lýsing
Fasteignasalan Byggð 464-9955
Skálatún 16
Vel skipulögð þriggja til fjögurra herbergja raðhúsaíbúð á einni hæð með innbyggðum bílskúr í Naustahverfi, næsta nágrenni við leik- og grunnskóla. Eignin er samtals 135,1 fm. þar af er bílskúr skráður 34,5 fm en er minni í dag og íbúðarhluti stærri þar sem geymsla sem átti að vera innangeng úr bílskúr er nú orðin að herbergi/geymslu innangeng af holi íbúðar.
**Þak yfirfarið og lagað 2026**
**Lóð svo gott sem umhirðulaus, ekkert gras**
**Eldhús endurnýjað 2025**
**Aukin lofthæð í eldhúsi og stofu**
Eignin skiptist í forstofu, hol, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu, geymslu og bílskúr.
Nánari lýsing:
Forstofa er með flísar á gólfi og fataskáp. Úr forstofu er innangengt í bílskúr.
Hol er rúmgott með flísar á gólfi, og tengir saman öll rými íbúðar.
Stofa er björt með flísar á gólfi, aukinni lofthæð og gluggum til suðurs.
Eldhús er með flísar á gólfi, aukinni lofthæð, fallegri HTH innréttingu, innbyggður ísskápur og uppþvottavél og bakaraofn í vinnuhæð. Mikið skápa- og bekkjarpláss. Úr eldhúsi er gengið út á steypta afgirta verönd til suðurs.
Svefnherbergi eru tvö, bæði rúmgóð með flísum á gólfi og fataskápum.
Baðherbergi er afar rúmgott með flísum á gólfi og í kringum sturtu. Þar er einnig innrétting í kringum vask, upphengt klósett, handklæðaofn og mjög góð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð á bakvið skápahurðir.
Geymsla er með flísum á gólfi og hefur verið nýtt sem herbergi og skrifstofa. Þar er opnanlegur þakluggi.
Bílskúr er með flísum á gólfi, inngönguhurð við hlið innkeyrsluhurðar. Þar er bekkur með vask og hillur sem fylgja.
Annað:
-Þak var yfirfarið og lagað fyrir skömmu síðan af fagmanni
-Lóð er glæsileg, steyptar stéttar fyrir tvo bíla fyrir framan bílskúr að framan með ótengdum hitalögnum
-Verönd bakvið hús er steypt með timburskjólveggjum alveg að lóðarmörkum til suðurs. Útgengt er af verönd um hlið að snúrustaur
-Eldhús er frá HTH og var endurnýjað í lok árs 2025, AEG tæki
-Gólfhiti í allri íbúðinni
-Pljed stýring á ljósum víðast hvar og fylgja öll loftljós, ekki hangandi ljós
-Ljósleiðari
-Steypt ruslaskýli
-Vinsæl staðsetning í Naustahverfi, í næsta nágrenni við leik- og grunnskóla
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:
olafur@byggd.is
greta@byggd.is
bjorn@byggd.is
Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
16. apr. 2025
80.450.000 kr.
86.000.000 kr.
10102 m²
8.513 kr.
5. júl. 2018
41.400.000 kr.
53.100.000 kr.
135.1 m²
393.042 kr.
30. jún. 2006
2.350.000 kr.
20.940.000 kr.
10102 m²
2.073 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026