Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Heimir Hafsteinn Eðvarðsson
Árni Björn Erlingsson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1968
svg
171,7 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Fasteignaland fasteignasala og Hörður Sverrisson, lgf s 777-5209, hordur@fasteignaland kynna í sölu

Engjaveg 53, fallegt fimm herbergja einbýlishús miðsvæðis á rótgrónum stað á Selfossi.


Um er að ræða vel staðsett 135,1 fm. einbýlishús ásamt 36,6 fm. bílskúr, samtals 171,7 fm skv fasteignaskrá.
Húsið er byggt úr steinsteypu árið 1968 og er múrað og málað að utan.  Bárujárn er á þaki.
Garðurinn er vel gróinn og snyrtilegur. Í göngufæri er íþróttasvæði, skóli, sundlaug og miðbærinn.

Að innan er húsið þannig skipulagt:
Forstofa góðum fataskáp
Fjögur svefnherbergi á herbergjagangi,
Samliggjandi stofa, borðstofa og hol
Opið endurnýjað eldhús með fallegri glæsilegri innréttingu, eldhústækjum og gólfefnum. Innréttingin er frá HTH og eldhústæki frá AEG. Granít borðplata er á innréttingu. Hiti er í gólfi undir nýjum flísum.
Tvö baðherbergi, annað á herbergjagangi og hitt í forstofu. Baðkar er í öðru og sturta í hinu.
Þvottahús er innaf eldhúsi með útgengi út á baklóð. Geymsla er innaf þvottahúsi. Lítið búr er frá eldhúsi.
Gólfefni: Parket er á gólfum í stofu, borðstofu, holi og á herbergjum og herbergjagangi og flísar eru á forstofu, eldhúsi, baðherbergjum og þvottahúsi.  Í eldhúsinu er mjög falleg ný innrétting og eldhústæki með öllum þægindum. Fataskápar eru í þremur herbergjanna sem og forstofu.   
Bílskúrinn er 36,6 fm.  Innkeyrsluhurðin er tréflekahurð.  Möl er í innkeyrslu en hellulögn er næst húsinu.  Steypt stétt við útidyr.  Sólpallur er við húsið sunnanvert , sánahús og kaldur pottur.
Garðurinn er rótgróin með falleguum trjágróðri.

Hér er um að  ræða eftirsóknarvert einbýlishús með fjórum svefnherbergjum og góðum garði miðsvæðis á Selfossi.

Nánari upplýsingar veitir
Hörður Sverrisson, lgf
s 777-5209
hordur@fasteignaland.is

Fasteignaland fasteignasala
Skeifan 2 Reykjavík
s 599-6700



 

Fasteignaland ehf

Fasteignaland ehf

Skeifunni 2, 108 Reykjavík.
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
10. júl. 2024
73.750.000 kr.
73.000.000 kr.
10101 m²
7.227 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignaland ehf

Fasteignaland ehf

Skeifunni 2, 108 Reykjavík.