Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
fjölbýlishús

Norðurgata 51 eh

600 Akureyri

59.900.000 kr.

426.031 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2149547

Fasteignamat

59.950.000 kr.

Brunabótamat

62.650.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1947
svg
140,6 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

Fasteignasalan Hvammur - 466-1600 - gunnar@kaupa.is

Norðurgata 51 e.h. - Falleg og björt fjögurra herbergja efri sérhæð í tvíbýlishúsi á Eyrinni á Akureyri - stærð 140,6 m²


Eignin skiptist í forstofu, hol, stofu, borðstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymslu innan íbúðar auk geymslu og sameiginlegs þvottahúss á jarðhæð.

Nánari lýsing:
Forstofan er á jarðhæð með flísum á gólfi. Einnig er stigauppganga og stigapallur flísalagður og þaðan er gengið út á steyptar suð-austur svalir 
Holið er rúmgott og bjart með harðparketi á gólfi og er það alveg miðsvæðis í eigninni.
Stofan og borðstofan eru bjartar og rúmgóðar með harð parketi á gólfum og gluggum til suðurs og vesturs. Í borðstofu er nýleg innrétting með miklu skápaplássi.
Eldhúsið er með harðparketi á gólfi og góðri innréttingu og glugga til tveggja átta.
Svefnherbergin eru þrjú, öll með harðparketi á gólfum. Fjórfaldur fataskápur er í hjónaherberginu.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, með góðri innréttingu með miklu skápaplássi, wc, baðkari með sturtutækjum og opnanlegum glugga.
Þvottahúsið er á hæðinni með dúk á gólfi, góðri innréttingu með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð og opnanlegum glugga.
Sér geymsla er á hæðinni, þar eru hillur og tengill þar sem í dag er frystikista.
Undir stiga er köld geymsla og þar inn af er aðgengi að sameiginlegu þvottahúsi og geymslu.

Annað:
- Góð staðsetning þar sem stutt er í leik- og grunnskóla sem og miðbæinn
- Björt og rúmgóð efri hæð með sér inngangi

Nánari upplýsingar veitir:
Gunnar Aðalgeir Arason í síma 618-7325 eða á gunnar@kaupa.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone