Opið hús: Lækjasmári 19, 201 Kópavogur, Íbúð merkt: 01 02 02. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 25. ágúst 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Nýlegar endurbætur: Eignin var endurnýjuð að innan fyrir nokkrum árum. Árið 2023 var gler endurnýjað í íbúðinni. Verið er að mála þak á húsinu. Búið er að endurnýja rafmagn í íbúðinni.
Forstofa er með parketi á gólfi og nýlegum fataskápum.
Svefnherbergið er smekklegt með parketi á gólfi, áfastri veggklæðningu með innfelldri lýsingu og fataskáp.
Baðherbergið er flísalagt með fallegri innréttingu, handklæðaofni, baðkari með sturtuaðstöðu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Stofan og borðstofan eru í björtu og opnu rými með parketi á gólfi. Útgengt út á suðvestur svalir.
Eldhúsið er með smekklegri dökkri innréttingu með innbyggðri uppþvottavél, vinkæli og ofni í góðri vinnuhæð. Gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp.
Í sameign á jarðhæð er sérgeymsla íbúðar, 7,3 fm ásamt sameiginlegum rýmum.
Eigninni fylgir þakrými merkt 0302 sem er óinnréttað og er skv skráningartöflu 55,2 fm að botnfleti. Nýtanlegir fermetrar því færri. Möguleiki er að opna úr íbúð upp í þetta rými og innrétta.
Upplýsingar veitir Sigurður Samúelsson Lgf í síma 896-2312 eða ss@landmark.is
--------------------------------------------------------------
Landmark fasteignamiðlun og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins.
Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat