Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2024
62,6 m²
2 herb.
1 baðherb.
1 svefnh.
Sameiginl. inngangur
Laus strax
Lýsing
„SÍÐASTA ÍBÚÐIN Í VÖNDUÐU FIMM ÍBÚÐA VERKEFNI – FULLBÚIN OG LAUS STRAX
Til sölu er björt og vönduð 62,6 m² tveggja herbergja íbúð, merkt 0101, við Vitastíg 9 í hjarta Reykjavíkur. Íbúðin er fullbúin og laus strax. Fjórar af fimm íbúðum verkefnisins við Vitastíg 9 og 9a eru seldar.
Íbúðin er á hálfri hæð frá sameiginlegum inngangi og skiptist í rúmgott anddyri með fataskápum, eldhús og stofu í björtu alrými, svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og suðursvalir. Gengið er út á svalirnar bæði úr svefnherbergi og anddyri.:
Allar nánari upplýsingar veitir Gunnar Patrik löggiltur fasteignasali í gsm 822-9415 eða gunnar@fstorg.is
Fullbúin 62,6 m² tveggja herbergja íbúð
• Síðasta íbúðin í fimm íbúða verkefni
• Suðursvalir með tveimur útgöngum
• Vandaðar VOKE3-innréttingar
• Borðplötur úr steini
Innbyggður AEG ísskápur með frysti og uppþvottavél
• AEG spanhelluborð og veggofn með kjöthitamæli og sjálfvirkum hreinsibúnaði
• Harðparket á íbúðinni en flísar á baðherbergi
• Fullbúin og laus strax
• Mánaðarlegt gjald til húsfélags 10.803 kr.
• Ásett verð undir fasteignamati
Skipulag og frágangur
Gengið er inn um sameiginlegan stigagang og upp hálfa hæð að íbúðinni. Anddyrið er rúmgott og með góðum fataskápum. Þaðan er gengið inn í opið og vel skipulagt alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu.
Eldhúsið er með hvítum VOKE3-innréttingum og borðplötum úr steini. Innbyggður AEG ísskápur með frysti, innbyggð uppþvottavél, spanhelluborð, veggofn með kjöthitamæli og sjálfvirkum hreinsibúnaði og Elica gufugleypir.
Í svefnherberginu er rúmgóður fataskápur og útgengt á suðursvalir. Einnig er gengið út á svalirnar úr anddyri.
Baðherbergið er flísalagt og búið sturtu með glerþili, vegghengdu salerni, handklæðaofni, VOKE3-innréttingu, handlaug og speglaskáp. Þar er jafnframt aðstaða og tengingar fyrir þvottavél og þurrkara.
Um húsið og staðsetninguna
Vitastígur 9 og 9a eru ný samliggjandi hús með samtals fimm íbúðum. Útlit húsanna tekur mið af gömlu götumynd Vitaþorps og var hannað í samráði við Minjastofnun.
Staðsetningin hentar einstaklega vel þeim sem vilja njóta miðbæjarlífsins, í stuttri göngufjarlægð frá Laugavegi, verslunum, veitingastöðum og allri helstu þjónustu.
Engin lyfta er í húsinu. Rafmagn er á sérmæli fyrir íbúðina.
Bókið skoðun – sýnum með stuttum fyrirvara.“

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Kaupandi greiðir skipulagsgjald til hins opinbera af eigninni 0.3 % af brunabótamati þegar endanlegt brunabótamat liggur fyrir.
3. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
4. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
12. des. 2022
45.000.000 kr.
197.101.000 kr.
297.1 m²
663.416 kr.
8. feb. 2007
15.750.000 kr.
18.900.000 kr.
71.6 m²
263.966 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026