Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sverrir Kristinsson
Kjartan Hallgeirsson
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson
Daði Hafþórsson
Gunnar Helgi Einarsson
Gunnar Bergmann Jónsson
Jenný Sandra Gunnarsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Flétturimi 10

112 Reykjavík

62.900.000 kr.

801.274 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2040096

Fasteignamat

60.450.000 kr.

Brunabótamat

47.750.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1991
svg
78,5 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 31. ágúst 2026 kl. 17:00 til 17:30

Fasteignasali tekur á móti áhugasömum

Lýsing

Eignamiðlun kynnir:

Falleg og björt 78,5 fm 3-4ra herbergja íbúð á efstu hæð í fjölbýlishúsi við Flétturima 10 í Grafarvogi. Eignin skiptist í tvö svefnherbergi, forstofu, baðherbergi, eldhús og stofu. Ca. 15 fm ósamþykkt risloft er ekki skráð í fermetratölu eignarinnar, sem í dag er notað sem sjónvarpsherbergi. Sérgeymsla í kjallara. Góð lofthæð og svalir í suðvestur með fallegu útsýni. Vinsæl staðsetning þar sem stutt er í skóla og alla þjónustu.

**Sækja söluyfirlit**


Nánari lýsing:
Forstofa: Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi og fatahengi.
Hjónaherbergi: Á vinstri hönd frá forstofu er komið inn í hjónaherbergi með fatahengi og harðparketi á gólfi.
Stofa: Úr forstofu er komið inn í opið rými. Stofan er með mjög góðri lofthæð, harðparketi á gólfi og stórum og flottum hornglugga.
Eldhús: Eldhúsið er samliggjandi stofu og með fallegri innréttingu, flísar eru á milli efri og neðri skápa, helluborð með ofni undir og tengi fyrir uppþvottavél. Úr eldhúsi er gengið út á rúmgóðar svalir í suðvestur með fallegu útsýni.
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með innréttingu og baðkari með sturtuaðstöðu. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara er á baðherbergi og vélarnar eru í vinnuhæð.
Svefnherbergi: Við hlið baðherbergis er svefnherbergi með góðri lofthæð, stórum glugga og með harðparketi á gólfi.
Sjónvarpsherbergi: Úr stofu er gengið upp stiga í ca. 15 fm risloft sem er ekki samþykkt og ekki skráð í fermetratölu eignarinnar. Rýmið nýtist vel sem sjónvarpsherbergi/vinnuaðstaða.
Geymsla: Sérgeymsla með hillum er í kjallara og sameiginleg vagna- og hjólageymsla á jarðhæð.

Framkvæmdir:
Gerð var úttekt á húsinu í ársbyrjun 2024. Húsfélagið hefur staðið að framkvæmdum á grundvelli þeirrar skýrslu. Búið er að skipta um glugga og gler þar sem þörf var á, skipt var um járn, pappa og fl. á þaki og farið hefur verið í múrviðgerðir og málun á hús sem er nú á lokametrunum. Kostnaður vegna framkvæmda er greiddur af seljanda.

Nánari upplýsingar veitir Lilja Guðmundsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 649-3868 eða lilja@eignamidlun.is

 

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
25. mar. 2021
36.900.000 kr.
45.000.000 kr.
78.5 m²
573.248 kr.
5. feb. 2016
21.700.000 kr.
28.000.000 kr.
78.5 m²
356.688 kr.
11. nóv. 2011
15.100.000 kr.
16.500.000 kr.
78.9 m²
209.125 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík