Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hilmar Gunnlaugsson hrl
Sigurður Magnússon
Bryndís Björt Hilmarsdóttir
Vista
einbýlishús

Fagrihjalli 3a

690 Vopnafjörður

22.500.000 kr.

353.774 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2171710

Fasteignamat

13.650.000 kr.

Brunabótamat

30.650.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1944
svg
63,6 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús

Lýsing

INNI fasteignasala kynnir í einkasölu: Fagrihjalli 3a, Vopnafirði.
Gengið upp á timburpall og komið inn í viðbyggingu úr timbri sem virðist ekki vera skráð inni í birtri stærð hússins. Komið inn í forstofu með tvöföldum skáp. Gegnt hurð er baðherbergi með sturtuklefa, spónaparket á gólfi með niðurfalli. Þar við hliðina, í þessari viðbyggingu er þvottahús/geymsla, dúklögð. Gengið inn í eldhús, sem er með nýlega innréttingu og nýja bekkplötu. Vaskur, eldavél og ofn, vifta tengd út. Úr eldhúsi er gengið inn í netta stofu, sem er í suðaustur horni hússins. Sama gólfefni og í eldhúsi. Úr stofu er gengið í rúmgott herbergi (suðvestur horn), spónaparket á gólfi. Úr eldhúsi er síðan gengið inn í annað svefnherbergi, panilklætt, með glugga til vesturs. Þar er lúga niður í kjallar um góðan timburstiga. Kjallari virðist ekki heldur vera talinn með í opinberri fermetrastærð hússins. Kjallari er með rakalykt, tvö rými, bæði hrá. Þörf er á að drena húsið að utan og ber kjallari þess merki. Hurð úr kjallara, upp steyptan stiga út í garð.
Að utan hefur húsið verið tiltölulega nýlega klætt og lítur það vel út. Sama gildir um þak, járn á þaki virðist í góðu ástandi. 
Lóð er gróin og húsið er vel staðsett í næsta nágrenni við grunn- og leikskóla bæjarins. 
Húsið er aðeins skráð 63,6 fm. en inn í þá fermetratölu virðist vanta bæði kjallara og viðbyggingu. 

INNI fasteignasala ehf

INNI fasteignasala ehf

Fagradalsbraut 11, 700 Egilsstaðir
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
22. feb. 2010
3.540.000 kr.
4.000.000 kr.
63.6 m²
62.893 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
INNI fasteignasala ehf

INNI fasteignasala ehf

Fagradalsbraut 11, 700 Egilsstaðir
phone