Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Eiríkur Svanur Sigfússon
Aron Freyr Eiríksson
Melkorka Guðmundsdóttir
Kristófer Fannar Guðmundsson
Svala Haraldsdóttir
Stefán Rafn Sigurmannsson
Arnór Daði Eiríksson
Vista
fjölbýlishús

Herjólfsgata 34

220 Hafnarfjörður

119.900.000 kr.

1.294.816 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2354556

Fasteignamat

90.800.000 kr.

Brunabótamat

74.320.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2017
svg
92,6 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta

Lýsing

Falleg útsýnisíbúð á efstu hæð með tveimur stæðum í bílageymslu við
Herjólfsgötu 34 í Hafnarfirði


Til sölu er einstaklega falleg og björt 92,6 fm þriggja herbergja íbúð á efstu hæð í glæsilegu fjögurra hæða lyftuhúsi við Herjólfsgötu 34.
Íbúðin er með allt að 4 metra lofthæð, stórbrotnu sjávarútsýni og tveimur sérmerktum stæðum í bílageymslu, geymsla er inn af bílastæði.

Um er að ræða vel skipulagða og vandaða eign á eftirsóttum stað þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, útivistarsvæði og fallegar gönguleiðir.
Eignin skiptist í:
  • Anddyri
  • Tvö svefnherbergi
  • Eldhús og stofu í opnu og björtu rými
  • Baðherbergi
  • Svalir
  • Sérgeymslu
  • Tvö bílastæði í lokaðri bílageymslu

Nánari lýsing

Komið er inn í rúmgott anddyri með góðum fataskápum. Inn af anddyrinu er svefnherbergi með fataskáp.
Eldhúsið er snyrtilegt og vel búið með fallegri hvítri innréttingu, dökkum efri skápum, granítborðplötu, borðkóki, uppþvottavél og kæliskápur fylgja.
Eldhús og stofa mynda eitt opið og bjart alrými þar sem lofthæðin nær allt að fjórum metrum og skapar einstaka rýmistilfinningu.
Stórir gluggar snúa til suðvesturs og veita mikla birtu inn í rýmið.
Frá stofu er gengið út á góðar suðvestursvalir þar sem njóta má glæsilegs sjávarútsýnis, fjallasýn á Reykjanesskaga og fallegs sólseturs allan ársins hring.
Hjónaherbergið er rúmgott með góðum skápum.
Baðherbergið er flísalagt með hvítri innréttingu, sturtuaðstöðu (walk in), handklæðaofni og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Í kjallara hússins fylgir eigninni sérgeymsla, tvö stæði í bílageymslu auk sameiginlegrar hjóla- og vagnageymslu.

Gólfefni
Parket og flísar.

Umhverfi og staðsetning
Lóðin er snyrtileg, bílastæði malbikuð og göngustígar hellulagðir.
Frá eigninni er einstakt útsýni bæði til sjávar og yfir friðað hraun sem nýtur sín vel aftan við húsið.
Hér er um að ræða rólegt og eftirsótt hverfi þar sem náttúra og þjónusta fara vel saman.

Helstu kostir
✔ Efsta hæð með lyftu
✔ Allt að 4 metra lofthæð
✔ Tvö sérmerkt stæði í bílageymslu
✔ Glæsilegt sjávarútsýni
✔ Bjartar suðvestursvalir
✔ Vandaðar Axis innréttingar
✔ Byggt árið 2017
✔ Stutt í þjónustu og útivist

Einstaklega vel staðsett og falleg eign sem sameinar nútímalegan frágang, mikla birtu og einstakt útsýni.
Hentar jafnt pörum, fjölskyldum sem og þeim sem vilja njóta þæginda í lyftuhúsi á frábærum stað í Hafnarfirði.

Nánari upplýsingar veitir Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / svala@as.is og

Eiríkur Svanur Sigfússon löggiltur fasteignasali í síma 862-3377 / eirikur@as.is

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is

Ás fasteignasala

Ás fasteignasala

Fjarðargötu 17, 220 Hafnarfirði
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
8. nóv. 2018
47.300.000 kr.
60.500.000 kr.
92.6 m²
653.348 kr.
30. jún. 2016
3.040.000 kr.
178.700.000 kr.
369.5 m²
483.627 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Ás fasteignasala

Ás fasteignasala

Fjarðargötu 17, 220 Hafnarfirði
phone