Opið hús: Barrholt 31, 270 Mosfellsbær. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 8. september 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.
Lýsing
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit. Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign.
Eignin er skráð sem hér segir hjá HMS, íbúð 140 fm og bílskúr 56,2 fm alls birt stærð 196.2 fm.
Fasteignamat fyrir 2027 er 133.050.000kr
Nánari lýsing á eigninni
Forstofa er með fatahengi og flísar á gólfi, hægt er að ganga inn í þvottahús og þar inn í eldhúss.
Eldhús er bjart, með fallegri, upprunalegri viðarinnréttingu með ljósri borðplötu, flísar á gólfi, útsýni er á Esjuna
Þvottahús er bæði innangengt úr eldhúsi og úr anddyri. Hillur og gott vinnupláss. Gólf er lakkað.
Stofa/borðstofa er rúmgóð, arinn fyrir miðju, parket er á gólfi. Útgengt er út í garðinn á hellulagða verönd.
Hjónaherbergi er innst á svefnherbergisganginum, með rúmgóðan fataskáp með speglum, parket á gólfi, útgengt er út í garð frá herbergi
Svefnherbergi 1 er með parket á gólfi
Svefherbergi 2 er með fataskáp og parket á gólfi
Svefnherbergi 3 er stórt forstofuherberbergi, var áður tvö svefnherbergi en veggur var fjarlægður og gert að einu, parket á gólfi.
Baðherbergi er rúmgott með fallegri viðarinnréttingu, með tveimur vöskum, speglaskápar að ofan með ljósum. Nuddbaðkar og gler sturtuhorn. Upphengt salerni, handklæðaofn og 2 gluggar. Baðherbergið var tekið alveg í gegn af fagmönnum árið 2007 og settur gólfhiti.
Gestasalerni er við forstofu með vaski og dúk á gólfi
Bílskúr er tvöfaldur og rúmgóður, innaf honum er búið að stúka af rými. Næg bílastæði.
Húsið hefur fengið ágætisviðhald og þá sérstaklega að utan, múrinn og þakið.
Fallegt og fjölskylduvænt einbýlishús í rótgrónu hverfi miðsvæðis í Mosó. Stutt í bæði leik- og grunnskóla sem og alla helstu þjónustu og verslun. Stutt í stofnbrautir og strætó. Fallegar gönguleiðir, golfvöllur og íþróttasvæði Aftuereldingar í næsta nágrenni og sundlaug í göngufæri.
Nánari upplýsingar um eignina veita Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is og Elísabet Guðmundsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 822-4848 eða á netfanginu elisabet@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.