Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1968
80,6 m²
4 herb.
1 baðherb.
3 svefnh.
Útsýni
Sameiginl. inngangur
Laus strax
Lýsing
Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - jason@betristofan.is og Betri Stofan kynna: Efstaland 24.Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - jason@betristofan.is og Betri Stofan kynna: Efstaland 24. Björt, falleg og vel skipulögð 4ra herbergja endaíbúð við Efstaland í Fossvoginum. Um er ræða 80,6 fm íbúð á 2.hæð með frábæru útsýni yfir Fossvogsdalinn, frá anddyri er gengið upp hálfa hæð og þá er íbúðin á vinstri hönd. Eignin skiptist í forstofu, baðherbergi, þrjú svefnherbergi, eldhús og rúmgóða stofu með útgengi út á suður svalir. Sameiginlegt þvottahús er á neðstu hæð ásamt sérgeymslu (ekki talin með í fermetratölu), vagna- og hjólageymslu.
Íbúðin er staðsett miðsvæðis í Fossvoginum í barnvænu og eftirsóttu hverfi, stutt í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla og útivistarsvæði.
Íbúðin hefur öll verið tekin í gegn og var því lokið haustið 2023.
Húsið hefur fengið gott viðhald; á síðustu sex árum hefur það verið málað að utan, bílastæði endurnýjuð, hellulagt framan við og hiti settur í stétt, nýjar sorpgeymslur settar, stigagangur teppalagður, veggir og gólf máluð í sameign, skipt um frárennsli og dren norðan megin, lóðin tekin í gegn og nýjar grasþökur settar. Verið er að skipta um glugga á norðurhlið, en skipt var upp glugga og svalarhurðir á suðurhlið fyrir nokkrum árum sem og um þakjárn og pappa.
Eignin er laus fljótlega.
Nánari lýsing – íbúðin hefur öll verið endurnýjuð, harðparket er á öllum gólfum fyrir utan baðherbergi, en þar eru ljósar flísar.
Forstofa: Gengið er inn í forstofu og í holi er fatahengi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með “walk in” sturtu, hvít innrétting, upphengt klósett og handklæðaofn.
Eldhús: Hvít eldhúsinnrétting með SMEG veggofni, innbyggðum ískáp/frysti, uppþvottavél, veggháfi og electrolux helluborði. Eldhús og stofa flæða saman, harðparket er á gólfum og stór gluggi.
Stofa: Rúmgóð og björt stofa með stórum gluggum og útgengi út á suðursvalir með útsýni yfir Fossvogsdal.
Svefnherbergi I: Hjónaherbergi er mjög rúmgott, með fataskápum, stórum glugga og útsýni yfir Fossvogsdalinn
Svefnherbergi II og III eru minni, með góðum gluggum.
Sérgeymsla: Er á 1.hæð ca 6-7 fm ( ekki skráð fm tölu eignar).
Þvottahús: Sameiginlegt þvottahús er með tengi fyrir þvottavél og þurrkara ásamt vagna- og hjólageymslu.
Íbúðin er skrá skv. FMR 80,6 fermetrar en er í raun með geymslu í kringum 85-86 fermetrar.
Nánari upplýsingar: Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 jason@betristofan.is löggiltur fasteignasali.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
6. sep. 2020
40.950.000 kr.
44.000.000 kr.
80.6 m²
545.906 kr.
3. mar. 2017
31.950.000 kr.
37.200.000 kr.
80.6 m²
461.538 kr.
29. nóv. 2013
21.250.000 kr.
23.900.000 kr.
80.6 m²
296.526 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026