Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1969
86,2 m²
4 herb.
1 baðherb.
3 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 22. september 2026
kl. 17:00
til 17:30
Opið hús: Gautland 7, 108 Reykjavík, Íbúð merkt: 04 03 02. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 22. september 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Vel skipulögð 86,20 fm 4. herbergja íbúð á þriðju og efstu hæð með stórum suðursvölum með glæsilegu útsýni á eftirsóttum stað í Fossvogi.Einungis sex íbúðir í stigaganginum, stór sameiginlegur garður og næg bílastæði fyrir framan húsið. Stutt er í Fossvogsdalinn og alla helstu þjónustu, þ.á.m. verslunarkjarnann Grímsbæ, veitingastaðinn Fossinn, leik- og grunnskóla og íþróttastarf í Víkinni.
Íbúðin skiptist í forstofu, stofu/borðstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi og baðherbergi.
Nánari lýsing:
Gengið er inn í forstofu með fataskáp og parketi á gólfi.
Stofa og borðstofa eru samliggjandi í rúmgóðu opnu rými. Glæsilegt útsýni. Parket á gólfi.
Eldhúsið er með hvítri innréttingu með góðu skápa- og vinnuplássi. Bakaraofn í vinnuhæð. Uppþvottavél. Rúmgott með góðu plássi fyrir eldhúsborð. Parket á gólfi.
Baðherbergið er með hvítri innréttingu undir handlaug og speglaskáp. Rúmgóð sturta. Flísalagt í hólf og gólf.
Hjónaherbergi er rúmgott með fataskápum meðfram heilum vegg. Parketlagt. Útgengt á einstaklega rúmgóðar suðursvalir með glæsilegu útsýni.
Tvö barnaherbergi, bæði parketlögð. Það eru ekki fastir fataskápar í barnaherbergjum.
Geymsla: 5,4 fm sérgeymsla með hillum í kjallara.
Þvottahús: sameiginlegt þvottahús í kjallara, hver íbúð með sínar vélar.
Hjóla- og vagnageymsla: sameiginleg í kjallara.
2023 - Nýtt parket. Ný blöndunartæki frá Tengi. Íbúð máluð. Rafmagnslagnir endurnýjaðar og nýtt rafmagn dregið í alla íbúðina.
2022 - Nýtt gólfefni á þvottahús og hjólageymslu
2020 - Húsið múrviðgert að utan og málað.
2015 - Gler endurnýjað á norðurhlið eftir þörfum
2010 - Húsgaflinn austanmegin klæddur
2006 - Stétt fyrir framan hús hellulögð og hiti settur í hana.
Nánari upplýsingar veitir:
Unnar Kjartansson, löggiltur fasteignasali, í síma 867-0968 eða unnar@eignamidlun.is
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
28. sep. 2023
55.000.000 kr.
64.900.000 kr.
86.2 m²
752.900 kr.
30. ágú. 2021
44.400.000 kr.
54.000.000 kr.
86.2 m²
626.450 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026