Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Maack Gunnarsson
Svanþór Einarsson
Theodór Emil Karlsson
Steingrímur Benediktsson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1975
svg
178,2 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
Opið hús: 21. september 2026 kl. 16:30 til 17:00

Lýsing

** Opið hús mánudaginn 21. september frá kl. 16:30 til 17:00- Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Vel skipulagt 178,2 m2 einbýlishús með bílskúr við Bergholt 16 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 178,2 en þar af íbúðarrými 145 m2 og bílskúr 33,2 m2. Eignin skiptist í forstofu, stofu, borðstofu, eldhús, fjögur svefnherbergi (fimm á teikningu), baðherbergi, gestasnyrtingu, þvottahús, bílskúr og geymslu. Stór timburverönd, hellulögð verönd, geymsluskúr og hellulagt bílaplan. Húsið er vel staðsett í vinsælu og grónu hverfi í Mosfellsbæ, stutt frá skóla, leikskóla, verslun og allri helstu þjónustu. 

Skv. upplýsingum frá seljanda var elduhús og þvottahús endurinnréttað árið 2007. Gluggar endurnýjaðir árið 2011. Þak endurnýjað árið 2013 (timburklæðning, einangrun, pappi og járn) einnig var jarvegskipt í lóð bílastæði og hellulagt í garði. Um 60 m2 timburverönd  árið 2014. Húsið múrað á tveimur hliðum og allir veggir málaðir árið 2020. Baðherbergi endurnýjað árið 2020. 

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax

Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum á gólfi og fatahengi.
Gestasnyrting er með flísum á gólfi, salerni og handlaug.
Gangur er með parketi á gólfi.
Stofa og borðstofa eru í opnu björtu rými með parketi á gólfi. Arinn er í stofu. Úr stofu er gengið út á timburverönd í vesturátt.
Eldhús er með hvítri innréttingu og borðkrók, parket á gólfi. Í innréttingu er bakaraofn, helluborð og háfur. Gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu. Úr eldhúsi er gengið út á timburverönd í suðurátt.
Svefnherbergi nr. 1 (hjónaherbergi) er með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi nr. 2 ( tvö herbergi á teikningu) er með parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 3 er með parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 4 er með parketi á gólfi. Rennihurð er inn í herbergið. 
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, vegghengdu salerni, baðkari, sturtu og innréttingu með viðaráferð. 
Þvottahús er með flísum gólfi og stórri innréttingu. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Úr þvottahúsi er útgengt út á bílaplan.
Bílskúrinn er með rafmagnsopnun á innkeyrsluhurð. Innst í bílskúr er geymsla.

Verð kr. 139.900.000,-



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

img
Svanþór Einarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Mosfellsbæjar
Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone
img

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
4. mar. 2011
34.100.000 kr.
35.517.000 kr.
178.2 m²
199.310 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ