Lýsing
Einstaklega rúmgóð og björt 3-4 herbergja endaíbúð á efri hæð í nútímalegu tveggja hæða fjölbýli. Íbúðin er vel skipulögð með sérinngangi og suðursvölum.
Forstofa: Rúmgóð með flísalögðu gólfi og stórum fataskáp.
Stofa, borðstofa og eldhús: Opið rými með með harðparketi frá Birgisson og útgengi á suður svalir. Eldhúsinnrétting frá Arens, helluborð frá AEG með háfi, innbyggður blástursofni í vinnuhæð og Samsung ísskápur með frysti.
Svefnherbergi: Tvö rúmgóð svefnherbergi með harðparketi frá Birgisson og stórum innbyggðum skápum frá Arens.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum að hluta. Þar er falleg innrétting, upphengt salerni, handklæðaofn, sturta, loftræsting og gluggi. Inn af baðherbergi er þvottahús með flísum á gólfi og ljósri innréttingu.
Geymsla: Er innan íbúðar, parket á gólfi. Þar er gluggi og því mögulegt að nýta rýmið sem svefnherbergi.
Merkt bílastæði fylgir eigninni. Góðar svalir sem snúa til suðurs. Frábær staðsetning þar sem stutt er í glæsilegan nýjan grunn- og leikskóla, Stapaskóla.
Lóð: Sameiginleg lóð sem er tyrfð.
Íbúðin er einstaklega falleg og aðlaðandi. Góðar gönguleiðir eru í hverfinu. Stutt er á Fitjar þar sem er mikill þjónustukjarni með veitingastöðum og matvörubúðum.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Sigurður Örn í s: 888-1245 eða á sohh354@gmail.com
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - breytilegt, sjá gjaldskrá á heimasíðum lánastofnana.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk.
Finndu frekari upplýsingar um eignina á www.e-fasteignir.is
- Söluyfirlit
- Senda fyrirspurn
- Tilboðsgerð
Vegna auglýsingar á vefsvæðinu fasteignir.is:
Eigendur auglýsa eign sína sjálfir án milligöngu og finna til kaupendur. Eigendur tryggja að löggiltur fasteignasali (eða aðili með löggildingu til að annast milligöngu um sölu fasteigna og skipa) annist milligöngu þegar kemur að kauptilboði og / eða kaupsamningsgerð vegna auglýsingar á vefsvæði Vísis (fasteignir.is). Þessi aðili mun þá sjá um skjalagerð, þ.m.t. söluyfirlit, kauptilboð, kaupsamning, veðleyfi og afsal, eftir því sem við á hverju sinni, og sjá um að annast viðskiptin í samræmi við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Þannig er tryggt að varnir gegn peningaþvætti séu virtar og að réttarstaða kaupanda og seljanda er glögg.
Eigendur geta nýtt sér umrædda þjónustu hjá samstarfsaðila e-fasteigna, PRIMA fasteignasölu, en það er ekki skilyrði fyrir notkun kerfisins og stendur aðilum aðeins til boða ef hún hentar öllum hlutaðeigandi.
Verðskrá þjónustunnar er aðgengileg á vef e-fasteigna.