Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Svavar Friðriksson
Vista
fjölbýlishús

Tryggvagata 13

101 Reykjavík

79.900.000 kr.

1.069.612 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2356226

Fasteignamat

77.350.000 kr.

Brunabótamat

53.450.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2017
svg
74,7 m²
svg
2 herb.
svg
Lyfta
Opið hús: 21. september 2026 kl. 17:00 til 17:30

Matthildur Sunna lgfs s. 690 4966 verður á staðnum og sýnir

Lýsing

TORG FASTEIGNASALA KYNNIR TIL SÖLU: Vönduð 74,7 fm tveggja til þriggja herbergja íbúð á fjórðu hæð við Tryggvagötu 13 í miðbæ Reykjavíkur. Íbúðin er með fallegum innréttingum, gólfsíðum gluggum og suður svölum. Anddyri, gangur, svefnherbergi með fataherbergi inn af, baðherbergi með þvottaaðstöðu og samliggjandi eldhús og stofa. Gólfhiti er í íbúð. Sér geyjmsla og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í sameign. Einstaklega fallegt anddyri á jarðhæð. Eignin er vel staðsett í hjarta miðbæjar og stutt er í alla helstu þjónustu, Hörpu, Tjörnina, Vesturbæinn og Granda. Nánari upplýsingar veitir Matthildur Sunna Þorláksdóttir lögfræðingur og löggiltur fasteignasali í síma 690 4966 eða matthildur@fstorg.is

Nánari lýsing:
Komið er inn í anddyri með góðu skápaplássi. Stofa og eldhús eru í alrými. Eldhús er með fallegri, dökkri innrétttingu með efri og neðri skápum og stein á borði. Útgengt er út á suðursvalir frá stofu. Innbyggður ísskápur, frystir og uppþvottavél. Hjónaherbergið er rúmgott og með fataherbergi inn af. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf að hluta og með hvítri skúffueiningu undir vask. Walk-in sturtu og upphengt klósett. Möguleiki er að bæta við öðru svefnherbergi.
Parket er á allri íbúðinni að undanskildu votrými þar sem eru flísar. Hiti er í gólfum. Snertilaust lyklaaðgangi að íbúð, sameignarrými og útihurðum. Sérgeymsla í kjallara sem og sameiginleg hjólageymsla.

Sameignin er einkar glæsileg með marmara á gólfum og sjónsteypu á veggjum og bæði er inngangur í bygginguna frá Tryggvagötu og Geirsgötu.
Húsið er afar smekklega hannað af Hildigunni Haraldsdóttur með sjónsteypu bæði á ytra byrði og á veggjum í sameign. Rúmgóðar hjólageymslur eru bæði á jarðhæð og í kjallara.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3.800,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á. 
 
TORG fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.
 

Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
22. júl. 2024
70.950.000 kr.
80.000.000 kr.
10401 m²
7.692 kr.
2. nóv. 2018
46.150.000 kr.
52.500.000 kr.
74.7 m²
702.811 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone