Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Heiðrekur Þór Guðmundsson
Elísabet Kvaran
Karólína Íris Jónsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Vallakór 6A

203 Kópavogur

91.900.000 kr.

727.057 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2354682

Fasteignamat

91.100.000 kr.

Brunabótamat

82.380.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2018
svg
126,4 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Bílskúr
svg
Útsýni
svg
Sérinngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta
svg
Svalir

Lýsing

VILTU fasteignasala kynnir Vallakór 6A í Kópavogi.

Falleg og vel skipulögð 4 herbergja íbúð á 3. hæð með stæði í lokaðri bílageymslu. Íbúðin er 126,4 m² að stærð, þar af er geymsla 5,6 m². Rúmgóðar svalir og glæsilegt útsýni setja sterkan svip á eignina.

Hún er skráð sem íbúð 0301 og henni fylgir geymsla ásamt sérmerktu stæði í bílageymslu, B32. Íbúðin skiptist í anddyri, hjónaherbergi og 2 barnaherbergi, baðherbergi, stofu og eldhús í rúmgóðu alrými. Útgengi er úr stofu á stórar svalir með svalalokun og er mikið útsýni bæði af svölunum og úr stofunni.

Ekki hika við að hafa samband til að bóka skoðun. Kristján Samúelsson, löggiltur fasteignasali í 777-0191 eða kristjan@viltu.is

Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.

Nánari lýsing:

Anddyri er rúmgott með fataskáp og flísar á gólfi.

Hjónaherbergi er rúmgott með stórum opnum fataskáp og parketi á gólfi.

Barnaherbergi 1 er með góðum fataskáp og parketi á gólfi.
Barnaherbergi 2 er með góðum fataskáp og parketi á gólfi.

Baðherbergi er flísalagt með sturtu, rúmgóða hvíta innréttingu og vegghengdu salerni, handklæðaofni og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.

Stofa og eldhús mynda bjart og rúmgott alrými. Eldhúsið er hvítt og L-laga, með góðu skápaplássi og vandaðri borðplötu úr quartz steini. Frá stofu er útgengi á stórar svalir með gott rými fyrir grill og garðhúsgögn. Parket er á gólfi í eldhúsinu og stofunni. Það er búið að setja quarts stein á alla sólbekki í íbúðinni.

Svalir eru rúmgóðar og bjóða upp á glæsilegt útsýni.

Húsið:

Húsið skiptist í tvær byggingar, Vallakór 6a og 6b, með tveimur lyftuhúsum. Tvær lyftur eru í öðru húsinu en ein í hinu. Stigar eru í báðum lyftuhúsum og er aðgengi því gott.

Bílageymsla er lokuð og fylgir öllum íbúðum sérmerkt bílastæði.

íbúðir á jarðhæð eru með sérafnotarétt á lóð.


Þjónusta:

Eignin er staðsett á vinsælum stað í Kópavogi þar sem stutt er í fjölbreytta þjónustu. Í næsta nágrenni má meðal annars finna leikskóla, grunnskóla, matvöruverslanir, Kórinn íþróttamiðstöð, Salalaug, hesthúsahverfi, líkamsrækt og golfvöll GKG. Þá eru Heiðmörk og útivistarsvæðin í kringum Elliðavatn og Vífilsstaðavatn í góðu nágrenni.

Fyrirvarar:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

Viltu fasteignir

Viltu fasteignir

phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
29. ágú. 2019
48.300.000 kr.
54.000.000 kr.
126.4 m²
427.215 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Viltu fasteignir

Viltu fasteignir

phone