Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sunna Björk Atladóttir
Eva Dögg Bergþórsdóttir
Vista
einbýlishús

Öldustígur 13

550 Sauðárkrókur

63.900.000 kr.

421.504 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2132530

Fasteignamat

56.500.000 kr.

Brunabótamat

70.550.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1955
svg
151,6 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Fasteignin Öldustígur 13, Sauðárkróki ásamt tilheyrandi lóðarleiguréttindum. 
Sjö herbergja einbýlishús á tveimur hæðum ásamt bílskúr, alls 151,6 fm. 
Skráð stærð íbúðarinnar er 114,7 fm og bílskúr er 36,9 fm. Húsið var byggt árið 1955 og bílskúrinn árið 1976.
Leigulóð hússins alls er 775 fm. 


Neðri hæð hússins skiptist í forstofu, hol, stofu,borðstofu, eldhús, svefnherbergi, fataherbergi, baðherbergi og þvottahús. 
Komið er inn í flísalagða forstofu. Þaðan liggur teppalagður stigi upp á efri hæðina. Undir stiganum er lítil geymsla. Úr forstofu er gengið inn á parketlagt hol.
Stofa og borðstofa eru samliggjandi. Parket er á gólfum. Opið er úr borðstofu yfir í eldhús.
Eldhús er með ljósri innréttingu, dökk borðplata. 
Eitt svefnherbergi er á neðri hæðinni. Við hliðiná svefnherberginu er fataherbergi með góðum fataskápum.
Baðherbergi er flísalagt. Hvít baðinnrétting, handklæðaofn og sturta.
Í þvottahúsi er vaskur og hillur. Þaðan er útgengt út í garð til norðurs.

Efri hæð skiptist þrjú svefnherbergi, sjónvarpsherbergi og snyrtingu. Efri hæð er að hluta undir súð og gólfflötur því stærri en fermetrafjöldi getur til kynna.
Svefnherbergin eru öll parketlögð. 
Sjónvarpsherbergi er parketlagt, þar inn af er lítil snyrting. Hægt er að nýta þetta herbergi sem svefnherbergi.

Bílskúr er rúmgóður, geymsla er innst. Skipt var um glugga í bílskúr árið 2018 og AQUAFIN-RS 300 múrþéttiefni sett á þak.

Fallegur garður er fyrir framan hús. Í garðinum fyrir aftan hús er sólpallur og heitur pottur.

Árið 2020 var húsið klætt með Canexel klæðningu og sett 1" einangrun. Einnig var skipt um nokkrar rúður á sama tíma. Raflagnir endurnýjaðar.
Innkeyrsla og stétt fyrir framan hús voru tekin í gegn árið 2021. Snjóbræðslu og E-50 ECORASTER grindur lagðar. Rafmagn fyrir útiljós og útitenglar settir upp

Nánari upplýsingar er að fá hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið fasteignir@krokurinn.is
Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali
Eva Dögg Bergþórsdóttir löggiltur fasteignasali
Ella Magga aðstoðarmaður fasteignasala

Fasteignasala Sauðárkróks

Fasteignasala Sauðárkróks

Sæmundargötu 1, 550 Sauðárkrókur
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
25. apr. 2017
18.300.000 kr.
30.000.000 kr.
151.6 m²
197.889 kr.
28. apr. 2012
16.450.000 kr.
23.500.000 kr.
151.6 m²
155.013 kr.
24. feb. 2012
16.450.000 kr.
10.518.000 kr.
151.6 m²
69.380 kr.
30. jún. 2008
14.710.000 kr.
17.650.000 kr.
151.6 m²
116.425 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasala Sauðárkróks

Fasteignasala Sauðárkróks

Sæmundargötu 1, 550 Sauðárkrókur
phone