Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sunna Björk Atladóttir
Vista
einbýlishús

Bárustígur 2

550 Sauðárkrókur

82.000.000 kr.

396.135 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2131206

Fasteignamat

82.600.000 kr.

Brunabótamat

109.450.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1978
svg
207 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Fasteignasala Sauðárkróks býður til sölu fasteignina við Bárustíg 2, Sauðárkróki ásamt tilheyrandi leigulóðarréttindum.
Bjart og vel skipulagt fjögurra til fimm herbergja einbýlishús á einni hæð ásamt viðbyggðum bílskúr og kjallara undir húsinu.
Skráð stærð eignarinnar skv. HMS er 207 fm. og skiptist þannig að íbúðarhúsið er 177 fm., þar af kjallari 51 fm. og bílskúr er 30 fm.
Leigulóðin er 1394 fm.  
Fasteignin er vel staðsett en stutt er í grunn- og framhaldsskóla, yngri deild leiksskóla, íþróttasvæði, sundlaug og verslun. 


Fasteignin skiptist í þrjú herbergi, rúmgóða og bjarta stofu, eldhús, búr, baðherbergi og þvottahús. Frá bílskúr er gengið til kjallara sem er rúmgóður og hátt til lofts.
Komið er í flísalagða forstofu þar sem er skápur.
Þaðan er gengið í parketlagt hol þar sem svalahurð er út á pall í garði sunnan við húsið. 
Stofa er parketlögð. Stórir gluggar sem snúa til suðurs og einn til vesturs. 
Eldhús er parketlagt, þar er hvít góð innrétting með ljósri borðplötu og góðu skápaplássi. Bakaraofn og helluborð frá Siemens. 
Við eldhús er dúklagt búr. 
Baðherbergi er með dúk á gólfi og flísar á veggjum að hluta. Innrétting er hvít.
Þvottahús er rúmgott og flísalagt. Frá þvottahúsi er hurð út framan við húsið. 
Bílskúr er fullfrágengin, gólf er málað og hurð út í garð sunnan við húsið. Snyrting er í bílskúr. 
Frá bílskúr er gengið til kjallara. Kjallari er rúmgóður og þar er hátt til lofts. Kjallarinn skiptist í þrjú rými. 

Bílaplan framan við bílskúr er steypt.
Hellulögð stétt með hitalögn er framan við húsið. 
Lóðin er stór og vel gróin. 
Þakkantur var endurnýjaður fyrir um 2 árum og húsið málað að utan.
Inntakið fyrir heita- og kaldavatnið var endurnýjað sumarið 2025

Nánari upplýsingar er að fá hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið fasteignir@krokurinn.is
Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali

Eva Dögg Bergþórsdóttir löggiltur fasteignasali
Ella Magga, aðstoðarmaður fasteignasala

 

Fasteignasala Sauðárkróks

Fasteignasala Sauðárkróks

Sæmundargötu 1, 550 Sauðárkrókur
phone
Fasteignasala Sauðárkróks

Fasteignasala Sauðárkróks

Sæmundargötu 1, 550 Sauðárkrókur
phone