Upplýsingar
Byggt 1972
184,5 m²
5 herb.
2 baðherb.
4 svefnh.
Þvottahús
Bílskúr
Laus strax
Opið hús: 30. september 2026
kl. 16:30
til 17:00
OPIÐ HÚS miðvikudaginn 30. september frá kl. 16.30 - 17.00 við Grenilund 2 í Garðabæ, allir velkomnir. Svala Haraldsdóttir lgfs verður á staðnum, vinsamlegast boðið komu ykkar í tölvupósti á svala@as.is.
Lýsing
Virkilega fallegt og vel staðsett einbýlishús á einni hæð með tvöföldum bílskúr og stóru sólhúsi við Grenilund 2 í Garðabæ.
Húsið stendur á rúmlega 1000 fm endalóð í rólegri götu. Garðurinn er gróinn og vel hirtur.
Eignin getur verið laus fljótlega!
Íbúðarhúsið skiptist í 4 herbergi, stofu, borðstofu, eldhús, baðherbergi, gestasnyrtingu, forstofu ,þvottahús og sólhús
Bílskúr er tvöfaldur með hellulögðu plani.
Nánari lýsing:
Gengið inn í flísalagða forstofu með fatahengi.
Við forstofu er gestasnyrting með glugga
Forstofuherbergi sem búið er að opna inn í stofu en lítið mál að loka aftur og nýta sem herbergi.
Frá forstofu er komið í parketlagt hol og þar við er stofa, borðstofa eldhús og herbergjagangur.
Stofa og borðstofa eru rúmgóð með parketi á gólfi, útgengt úr stofu í garð með hellulagðri verönd.
Eldhús er með viðarinnréttingu.Stæði fyrir uppþvottavél og ísskáp Gott skápapláss og borðkrókur.
Þvottahús með flísum á gólfi og veggjum, skápar og vaskur.
Útihurð frá þvottahúsi út á bílastæði. Hægt er að komast inn á herbergisgang frá þvottahúsi.
Lítil geymsla er innaf þvottahúsi með hillum og glugga.
Herbergjagangur parketlagður. Við ganginn eru 3 svefnherbergi og baðherbergi.
Hjónaherbergi með skápum og parket á gólfi.
Tvö barnaherbergi með parketi á gólfi.
Baðherbergið er með flísum á gólfi og veggjum, hvít innrétting, sturta og opnanlegur gluggi.
Við enda gangsins er stór og rúmgott sólhús sem er flísalagt með fallegan arinn.
Bílskúr er tvöfaldur með hurðaopnara á báðum hurðum.
Bakvið hús er hellulögð verönd með góðum geymsluskúr, í skúrnum eru hillur og rafmagn.
Bílaplan er hellulagt og það afar rúmgott. Hiti er í bílaplani og hluta gangstéttar að bílskúr.
Gólfefni íbúðarhluta eru flísar og parket.
Húsið er ekki samræmi við upphaflegar teikningar, stofa og borðstofa hafa verið stækkuð á kostnað 1 herbergis.
Upphaflega var gert ráð fyrir 5 svefnherbergjum.
Fallegt og vel skipulagt hús á þessum gróna stað, miðsvæðis í Garðabænum þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, verslanir , skóla og íþróttasvæði.
Nánari upplýsingar veitir Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / svala@as.is
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is