Upplýsingar
Byggt 2025
103,7 m²
4 herb.
1 baðherb.
3 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Bílastæði
Lyfta
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
DIGRANES: HÁVEGUR 2 ÍBÚÐ 03-04, 200 Kópavogi. Mjög vönduð 103.7 fm 4 herbergja íbúð í nýju glæsilegu lyftuhúsi. Sérgeymsla í sameign og sérmerkt stæði í bílageymslu fylgir öllum íbúðum og möguleiki er að kaupa aukastæði í bílageymslu. HEIMASÍÐA SMELLIÐ HÉRBÓKAÐU SKOÐUN HJÁ DAÐA Í SÍMA 824-9096, HILMARI Í SÍMA 824-9098 EÐA ÞÓRARNI Í SÍMA 899-1882.
ATH. UM MYNDIR: Myndir með gólfefnum og húsgögnum eru unnar með myndvinnslu og eru ætlaðar til að sýna mögulega útfærslu eignarinnar. Litir og áferð innréttinga geta því vikið lítillega frá raunveruleikanum.
SJÁ NÁNAR UM EIGNINA Í SKILALÝSINGU. SMELLTU HÉR FYRIR SÖLUYFIRLIT
Nánar: Íbúð merkt 03-04 er með 3 svefnherbergjum,eldhúsi, stofu og baðherbergi. Sérþvottahús. Geymsla í sameign fylgir. Íbúðinni fylgir stæði í bílakjallara merkt B-118.
ÍBÚÐIN: FORSTOFA/GANGUR: Forstofa með góðum skápum 4,1 fm. #GANGUR 8,5 fm # SÉRÞVOTTAHÚS: með flísalögðu gólfi, 4,0 fm. # BAÐHERBERGI: Baðherbergi er flísalagt vönduðum flísum bæði gólf og veggir, 5,6 fm. Innrétting með góðum skúffum og efri glerskáp með góðri lýsingu, Steinn á borðum. "walk in" sturta með glerskilrúmi. #HERBERGI I: Hjónaherbergi með góðum skápum, 14,6 fm, gengið út á 1,8 fm norðursvalir. # HERBERGI II: Herbergi, 7,1 fm. # HERBERGI III: Rúmgott herbergi, 8,7 fm. # ALRÝMI: Vandað eldhús með miklu skápa og skúffuplássi, eldaeyja, steinn á borðum. Innfelldur ísskápur og uppþvottavél fylgja. Opið yfir í rúmgóða STOFU og gengið út á 6,2 fm suðursvalir, alrými er samtals 31,0 fm # Í SAMEIGN ERU: Sérgeymsla íbúðarinnar , sameiginleg hjóla og vagnageymsla og innangengt í bílakjallara þar sem íbúðin á sérbílastæði.
INNRÉTTINGAR OG FRÁGANGUR: Eldhúsinnréttingar eru sérsmíðaðar frá Selós og skápar úr vönduðu og slitsterku melamínefni. Heimilistæki eru frá AEG. Kæli-/frystiskápur og uppþvottavél eru innbyggð og spanhelluborð fylgir.
Dekton Rem steinborðplötur eru í eldhúsum og Silestone Nolita steinborðplötur á baðherbergjum.
Baðherbergi og þvottahús, þar sem þau eru sér, eru flísalögð með Limestone MGM 60 × 60 cm flísum frá Ebson, á gólfum og veggjum að hluta.
Íbúðirnar eru með hefðbundnu ofnakerfi auk jafnvægisstillts loftræsikerfis með varmaendurvinnslu sem stuðlar að góðum loftgæðum.
DIGRANES – VÖNDUÐ NÝBYGGING Í KÓPAVOGI: JÁVERK ehf byggir á Digranessvæðinu glæsilegar og vel skipulagðar íbúðir þar sem lögð er áhersla á vandaða hönnun, góð efnisgæði og nútímalegar lausnir. Íbúðirnar eru afhentar fullbúnar án megingólfefna og með vönduðum innréttingum og tækjum.
Bílastæði í bílakjallara fylgir íbúðinni og möguleiki er á að kaupa viðbótarstæði.
GARÐUR OG UMHVERFI: Sameiginlegur inngarður er skjólgóður og vel hannaður með gróðri, leiktækjum og dvalarsvæðum. Digranes er einstaklega vel staðsett svæði í Kópavogi með góðar samgöngur og stutt í skóla, leikskóla, verslun og þjónustu.
Afhending íbúðanna: TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING.
Nánar um íbúðirnar við Digranes: Bjartar og vel hannaðar íbúðir sem gert er ráð fyrir að verði afhentar fullbúnar án megingólfefna og með vönduðum innréttingum, vandaðar flísar eru á baðherbergjum og þvottahúsgólfi.
Fágun og gæði voru höfð að leiðarljósi við hönnun íbúðanna sem og að einnig var hugað að því að hver og ein íbúð hefur vélræn loftskipti sem tryggja aukin loftgæði.
Svansvottun: Mjög er vandað til allrar framkvæmdar. Allt byggingarefni og öll framkvæmd verkefnisins miðast við kröfur Svansins Sjá nánar um svansvottun hér: Svansvottun
SKIPULAGSGJALD: Kaupendur greiða skipulagsgjald 0,3% af endanlegu brunabótamati þegar það verður innheimt.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook