Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ingólfur Geir Gissurarson
Heiðar Friðjónsson
Snorri Snorrason
Óskar H. Bjarnasen
Snorri Björn Sturluson
Elín Alfreðsdóttir
Gylfi Þór Gylfason
Vista
fjölbýlishús

Tangabryggja 15

110 Reykjavík

108.000.000 kr.

805.970 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2369429

Fasteignamat

91.500.000 kr.

Brunabótamat

82.550.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2019
svg
134 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta
Opið hús: 6. október 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Tangabryggja 15, 110 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 05 06. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 6. október 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

BÓKIÐ SKOÐUN: Valhöll og Elín Alfreðsdóttir lgf sími 8993090 eða elina@valholl.is 
KYNNA BJARTA OG GLÆSILEGA 134 FM, FJÖGURRA HERBERGJA ÍBÚÐ ÁSAMT STÆÐI Í BÍLAKJALLARA. ÍBÚÐIN ER Á FIMMTU OG NÆST EFSTU HÆÐ Í NÝLEGU LYFTUHÚSI VIÐ TANGARBRYGGJU 15. EINSTAKT ÚTSÝNI VIÐ STRANDLENGJUNA ÚT Á HAF OG TIL FJALLA. Um er að ræða einstaklega fallega útsýnis-íbúð á næst efstu hæð í Bryggjuhverfinu með svalalokun. Vandaðar innréttingar og gólfefni. Sjón er sögu ríkari.
Lýsing eignar: Forstofa: Björt og snyrtileg forstofa með góðum fataskáp. Harðparket á gólfi og skóskápur fylgir. Sjónvarpshol: Notalegt sjónvarpshol með góðu plássi fyrir sjónvarpsaðstöðu. Sjónvarpsskenkur fylgir.
Eldhús: Opið eldhús í tengingu við stofu og borðstofu. Vönduð GKS-innrétting með eyju, borðplötu og bakklæðningu í viðaráferð. Skápahurðir eru með silkimattri áferð. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél, keramikhelluborð, blástursofn og vandaður háfur yfir eyju.
Stofa/borðstofa: Björt og rúmgóð stofa og borðstofa með háum gluggum og víðáttumiklu sjávar- og fjallaútsýni. Harðparket er á gólfi. Úr stofu er gengið út á svalir með svalalokun sem nýtast sem skjólgott viðbótarrými stóran hluta ársins.
Baðherbergi: Vönduð innrétting frá GKS innréttingum. Rúmgóð sturta með flísalögðum þreplausum botni og hertu sturtugleri, veggir í sturtu eru flísalagðir en aðrir veggir málaðir. Gólf er flísalagt, handklæðaofn,upphengt salerni.
Hjónaherbergi: Bjart og rúmgott hjónaherbergi með stórum glugga. Harðparket á gólfi, fataskápur og fataherbergi.
Barnaherbergi 1: Bjart og rúmgott. Harðparket á gólfi, fataskápur. Barnaherbergi 2 : Bjart og rúmgott herbergi með gluggum til norðurs og austurs. Harðparket á gólfi og fataskápur. Þvottahús: Flísalagt þvottahús með góðri innréttingu og vaski. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: 8,2 fm, staðsett í sameign. Bílastæði : Merkt B50 í bílastæðakjallara tilheyrir eigninni. Búið er að gera ráð fyrir hleðslustöð rafmagnsbíla.
Húsið er byggt af ÞG verktökum árið 2019.
Nánari upplýsingar veitir: Elín Alfreðsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8993090 eða elina@valholl.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
 

img
Elín Alfreðsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Valhöll fasteignasala
Síðumúla 27, 108 Reykjavík
Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone
img

Elín Alfreðsdóttir

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
17. des. 2020
54.850.000 kr.
69.900.000 kr.
134 m²
521.642 kr.
8. nóv. 2019
57.200.000 kr.
68.500.000 kr.
134 m²
511.194 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone

Elín Alfreðsdóttir

Síðumúla 27, 108 Reykjavík