Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Jens Magnús Jakobsson
Sveinbjörn Rosen Guðlaugsson
Böðvar Reynisson
Vista
raðhús

Hæðarland 14

800 Selfoss

68.900.000 kr.

716.961 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2529390

Fasteignamat

70.750.000 kr.

Brunabótamat

54.750.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2024
svg
96,1 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
svg
Sérinngangur
svg
Hjólastólaaðgengi
svg
Laus strax

Lýsing

Hæðarland 14 er einstaklega stílhreint og fallegt 96,1m², 4ra herbergja miðjuraðhús í nýju og ört vaxandi fjölskylduvænu hverfi á Selfossi. Byggingarefni hússins er timbur og húsalengjan er klædd með Stacbond álklæðningu, sem gefur húsinu nútímalegt og snyrtilegt yfirbragð. Hiti er í gólfum ásamt hitastýringum og innfelldum ljósum með dimmerum. Einnig er gott loftræstikerfi í húsinu. Möl er á bílaplani, forsteypt sorptunnuskýli fyrir þrjár tunnur þökulögð lóð þar sem gert er ráð fyrir palli og heitum potti. Fallegt útsýni og vinsæl staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu s.s. skóla leikskóla, verslun, íþróttamannvirki og útivistarsvæði.  

Hæðarland 14, 800 Selfoss, nánar tiltekið eign merkt 01-02, fastanúmer 252-9390 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Birt stærð 96.1 fm.


**** EIGNIN ER LAUS VIÐ KAUPSAMING **** 

BÓKAÐU EINKASÝNINGU:
Böðvar Reynisson Lögg.fasteignasali. í síma 7668484, tölvupóstur bodvar@eignaland.is.
Jens Magnús Jakobsson Lögg.fasteignasali, í síma 893-1984, tölvupóstur magnus@eignaland.is


Nánari lýsing eignar:
Forstofa með 60x60cm flísum á gólfi og góðu forstofuskáp.
Samliggjandi stofa/borðstofa/eldhús 
Eldhúsið er parketlagt með hvítri L-laga IKEA innréttingu með lýsingu undir efri skápum, svörtum vaski, blöndunartækjum og borðplötu. Innbyggður bakaraofn í vinnuhæð. Innbyggð uppþvottavél og ísskápur með frysti. 
Stofan/borðstofan er parketlögð, rúmgóð og björt og gengið er frá stofunni út í garð.
Svefnherbergi I er rúmgott með parketi á gólfi og góðum fataskápum.
Svefnherbergi II með parketi á gólfi og góðum fataskáp.
Svefnherbergi III með parketi á gólfi og góðum fataskáp.
Baðherbergi með ljósum 60x60cm flísum á gólfi og hluta veggja, falleg hvít innrétting með handlaug og speglaskáp fyrir ofan innréttingu. Upphengt salerni, handklæðaofn og flísalögð sturta með glerþili.
Þvottahúsið er með hvítri innréttingu með vaski og góðu skápaplássi. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.

Útisvæði og staðsetning
Húsið stendur á góðri lóð í rólegu og fjölskylduvænu hverfi. Mikil uppbygging hefur átt sér stað á svæðinu á síðustu árum og hverfið hefur yfirbragð nýs og vel skipulagðs íbúðahverfis.
Staðsetningin er sérstaklega góð fyrir fjölskyldufólk. Leikskóli er í göngufæri, auk þess sem stutt er í matvöruverslun, útivistarsvæði og hesthús. Þá er stutt í aðra þjónustu Selfoss, þar á meðal skóla, íþrótta- og frístundastarf, sundlaug og fjölbreytta verslun og þjónustu.

Einstaklega fallegt og vel skipulagt hús sem vert er að skoða



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignaland fasteignasla bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda samkvæmt gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.

img
Böðvar Reynisson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Eignaland
Hlíðasmári 2, 201 Kópavogi - Eyrarvegur 37, 800 Selfossi
Eignaland

Eignaland

Hlíðasmári 2, 201 Kópavogi - Eyrarvegur 37, 800 Selfossi
phone
img

Böðvar Reynisson

Hlíðasmári 2, 201 Kópavogi - Eyrarvegur 37, 800 Selfossi
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
1. mar. 2024
38.000.000 kr.
62.500.000 kr.
96.1 m²
650.364 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Eignaland

Eignaland

Hlíðasmári 2, 201 Kópavogi - Eyrarvegur 37, 800 Selfossi
phone

Böðvar Reynisson

Hlíðasmári 2, 201 Kópavogi - Eyrarvegur 37, 800 Selfossi