Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Þórir Helgi Sigvaldason
Katla Hanna Steed
Jórunn Skúladóttir
Þórunn Pálsdóttir
Kristín Rós Magnadóttir
Tinna Björk Bryde
Upplýsingar
svg
Byggt 2026
svg
132,8 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Bílskúr

Lýsing

Kristín Rós Magnadóttir löggiltur fasteignasali og Háborg fasteignasala kynna:

Glæsilegt, nýtt parhús með bílskúr við Tröllahraun 51 í Hveragerði. 
Vandað fjögurra herbergja steypt parhús með bílskúr í nýju hverfi í Hveragerði. 
Um er að ræða 132,8 fm parhús á einni hæð. Húsið er steypt og klætt með forsteyptri veðurkápu.
Eignin skiptist í 107,3 fm íbúð og 25,5 fm bílskúr, hún er fullbúin og tilbúin til afhendingar fljótlega.  


Forstofa er flísalögð og úr henni er innangengt í bílskúr. 
Úr forstofu er gengið inn í alrými sem samanstendur af stofu, borðstofu og eldhúsi. Þaðan er svo gengið inn á baðherbergi og svefnherbergisgang.
Alrými er einstaklega bjart og opið, með gólfsíðum gluggum og hurð út í garð. Í eldhúsi er rúmgóð eldhúsinnrétting frá Ikea. 
Svefnherbergi eru þrjú, stórt hjónaherbergi og tvö einstaklingsherbergi.
Baðherbergi er flísalagt, þar sem gert er ráð fyrir þvottvél og þurrkara er málað. Á baðherbergi eru baðkar og sturta, klósett er upphengt, vaskinnrétting með speglaskáp og handklæðaofn. Öll hreinlætistæki eru frá Grohe. Gert er ráð fyrir þvottaaðstöðu á baðherbergi en möguleiki er að flytja þvottaaðstöðu inn í bílskúr.
Á gólfum íbúðarinnar er fallegt og vandað vínylparket frá Gólfefnavali.
Bílskúr er 25,5 fm, búið er að flota bílskúrsgólf, sjálfvirkur hurðaopnari er á bílskúrshurð. 
Aukin lofthæð er í eigninni. Loft íbúðar er sérstaklega hljóðeinangrað með steinull og klætt hljóðdúk, því er hljóðvist mjög góð. Gólfhiti er í allri eigninni.  
Gert er ráð fyrir bílahleðslustöð. 
Falleg útilýsing er á húsinu.

Allar frekari upplýsingar veitir Kristín Rós Magnadóttir, lögg. fasteignasali, í síma 860-2078 eða á  kristin@haborg.is

img
Kristín Rós Magnadóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Háborg fasteignasala
Grensásvegur 1, 108 Reykjavík
Háborg fasteignasala

Háborg fasteignasala

Grensásvegur 1, 108 Reykjavík
phone
img

Kristín Rós Magnadóttir

Grensásvegur 1, 108 Reykjavík
Háborg fasteignasala

Háborg fasteignasala

Grensásvegur 1, 108 Reykjavík
phone

Kristín Rós Magnadóttir

Grensásvegur 1, 108 Reykjavík