Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Jens Magnús Jakobsson
Sveinbjörn Rosen Guðlaugsson
Böðvar Reynisson
Vista
fjölbýlishús

Víkurmói 2

800 Selfoss

64.900.000 kr.

656.218 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2512980

Fasteignamat

62.850.000 kr.

Brunabótamat

57.150.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2022
svg
98,9 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
svg
Hjólastólaaðgengi
svg
Lyfta
svg
Laus strax

Lýsing

Víkurmói 2 – Falleg og vel skipulögð 4ra herbergja endaíbúð á Selfossi

Um er að ræða rúmgóða og bjarta 98,9m² íbúð á 2. hæð í nýlegu fjölbýlishúsi sem byggt var árið 2022. Íbúðin er endaíbúð og nýtur því góðrar birtu og fallegs útsýnis. Íbúðin er sérlega vel skipulögð með þremur svefnherbergjum, rúmgóðu alrými þar sem eldhús og stofa tengjast saman, góðu baðherbergi og geymslu innan íbúðar. Lyfta er í húsinu og sameiginleg hjólageymsla. Hleðslustöðvar fyrir rafbíla eru á lóð. Víkurmói er í nýlegu og aðlaðandi íbúðarhverfi á Selfossi. Staðsetningin hentar vel fyrir fjölskyldur og þá sem vilja hafa helstu þjónustu, skóla, verslun og íþróttasvæði innan þægilegrar fjarlægðar. Selfoss hefur á síðustu árum tekið miklum breytingum og uppbygging í nýjum hverfum hefur skapað eftirsótt íbúðarumhverfi þar sem áhersla er lögð á góða þjónustu og fjölbreytta möguleika til útivistar.

**** LAUS VIÐ KAUPSAMNING ****

BÓKAÐU EINKASÝNINGU:
Böðvar Reynisson löggiltur fasteignasali s. 766-8484, bodvar@eignaland.is
Jens Magnús Jakobsson löggiltur fasteignasali s. 893-1984, magnus@eignaland.is 


Nánari lýsing eignar:
Forstofa: Góð forstofa með fataskáp og harðparketi á gólfi.
Eldhús og stofa: Eldhús og stofa mynda bjart og rúmgott alrými með harðparketi á gólfi. Eldhúsinnréttingin er tvítóna, með ljósri viðaráferð á neðri skápum og hvítum efri skápum. Innréttingin er vel útfærð með góðu skápaplássi og LED-lýsingu undir efri skápum.
Heimilistæki eru frá Ormsson og eru m.a. helluborð, bakaraofn, háfur, ísskápur með frysti og innbyggð uppþvottavél.
Úr alrýminu er gengið út á góðar suðvestursvalir með góðu útsýni.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með þreföldum fataskápum, harðparketi á gólfi og gluggum á tvo vegu.
Svefnherbergi II: Gott svefnherbergi með fataskáp og harðparketi á gólfi.
Svefnherbergi III: Gott svefnherbergi með harðparketi á gólfi og góðum glugga.
Baðherbergi: Fallegt baðherbergi með flísalögðu gólfi og flísum að hluta til á veggjum. Þar er góð baðinnrétting með vaski og speglaskáp, handklæðaofn, upphengt salerni og rúmgóð opin sturta með glerþili. Innrétting er fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: 4,6 fm geymsla er innan íbúðar og gefur gott viðbótarpláss fyrir heimilið.

Húsið og sameign: Húsið er nýlegt, byggt árið 2022 úr forsteyptum einingum. Í húsinu er lyfta og snyrtileg sameign ásamt hjóla- og vagnageymslu.
Við húsið er malbikað bílaplan með bílastæðum og hleðslustöðvum fyrir rafbíla.

Upplýsingar úr þingl. eignaskiptayfirlýsingu:
Birt stærð séreignar: 98,9 m2
Fasteignanúmer: F2512980
Eignin er fjögra herbergja íbúð á 2. hæð hússins (0201, birt stærð 98,9 m2) innan íbúðar er einnig að finna geymslu sem og svalir 0210. Íbúðin er í hlutfallslegri eign í sameign húss og heildar. 

Víkurmói 2 er góður kostur fyrir þá sem leita að nýlegri, rúmgóðri og vel skipulagðri fjölskylduíbúð á Selfossi, með þremur svefnherbergjum, góðu alrými, svölum og öllum helstu nútímaþægindum.



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignaland fasteignasla bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda samkvæmt gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.

img
Böðvar Reynisson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Eignaland
Hlíðasmári 2, 201 Kópavogi - Eyrarvegur 37, 800 Selfossi
Eignaland

Eignaland

Hlíðasmári 2, 201 Kópavogi - Eyrarvegur 37, 800 Selfossi
phone
img

Böðvar Reynisson

Hlíðasmári 2, 201 Kópavogi - Eyrarvegur 37, 800 Selfossi
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
20. des. 2023
50.200.000 kr.
59.300.000 kr.
98.9 m²
599.596 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Eignaland

Eignaland

Hlíðasmári 2, 201 Kópavogi - Eyrarvegur 37, 800 Selfossi
phone

Böðvar Reynisson

Hlíðasmári 2, 201 Kópavogi - Eyrarvegur 37, 800 Selfossi