Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Maack Gunnarsson
Svanþór Einarsson
Theodór Emil Karlsson
Steingrímur Benediktsson
Vista
fjölbýlishús

Hamraborg 38

200 Kópavogur

58.900.000 kr.

821.478 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2061191

Fasteignamat

57.250.000 kr.

Brunabótamat

35.150.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1978
svg
71,7 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 12. október 2026 kl. 16:30 til 17:00

Lýsing

** Opið hús mánudaginn 12. október frá kl. 16:30 til 17:00 -  Laust strax - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040  ​- Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Vel skipulögð og björt 71,7 m2, 2ja herbergja íbúð á 1. hæð við Hamraborg 38 í Kópavogi. Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning. Eignin skiptist í svefnherbergi, forstofuhol, geymslu innan íbúðar, baðherbergi, eldhús, stofu og borðstofu. Eigninni tilheyra sameiginleg bílastæði í bílakjallara. Sameiginlegt þvottahús á hæðinni. Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.
Íbúðin er mjög vel staðsett, en stutt er í heilsugæslu, bókasafn, verslun, almenningssamgöngur, leik- og grunnskóla ásamt menntaskóla. 


Samkvæmt  upplýsingum frá húsfélagi þá var þakið lagfært og settur nýr þakpappi. Farið var í lagnakerfið og skipt í nýjar lokur, skipt á einhverjum lögnum, slaufuloka lagaðir og lagnirnar merktar. Verið er að klára múrviðgerðir á suður- og vesturhlið hússins. Greitt verður fyrir yfirstandandi framkvæmdir með inneign úr framkvæmdasjóð húsfélags.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax


Nánari lýsing:
Forstofuhol er með fataskápum og parketi á gólfi.
Eldhús er með hvítri innréttingu og borðkrók, parket á gólfi. 
Borðstofa og stofa eru í björtu opnu rými með parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á svalir í vesturátt.
Svefnherbergi er með parketi á gólfi og fataskápum.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum að hluta, salerni, baðinnréttingu og sturtu með sturtugleri.
Geymsla er innan íbúðar með hillum og parketi á gólfi.
Sameiginlegt þvottahús er á hæðinni.
Sameiginleg vagna- og hjólageymsla.
Sameiginleg bílastæði í bílakjallara.

Verð kr. 58.900.000,-



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

img
Svanþór Einarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Mosfellsbæjar
Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone
img

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
3. sep. 2020
33.600.000 kr.
36.200.000 kr.
71.7 m²
504.881 kr.
31. maí. 2017
23.700.000 kr.
30.100.000 kr.
71.7 m²
419.805 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ