Upplýsingar
Byggt 2000
101 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Útsýni
Sameiginl. inngangur
Bílastæði
Lyfta
Opið hús: 15. október 2026
kl. 17:00
til 17:30
Opið hús: Barðastaðir 9, 112 Reykjavík, Íbúð merkt: 0502. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 15. október 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Fasteignasalan TORG og Gunnar Patrik kynna: bjarta og vel staðsetta 101 fm, 3ja herbergja útsýnisíbúð á 5. hæð með suðursvölum og stæði í bílageymslu. Íbúðin er staðsett í snyrtilegu og vel umgengnu lyftuhúsi sem er steinað að utan og því viðhaldslétt.
Lýsing eignar:
Forstofa: Parketlögð og með fataskáp.
Svefnherbergi: Tvö parketlögð svefnherbergi, hlið við hlið, bæði með fataskápum.
Stofa og borðstofa: Bjart og rúmgott alrými þar sem stofa og borðstofa eru samliggjandi. Parket er á gólfi og útgengt er á suðursvalir.
Eldhús: Opið á tvo vegu að stofu og borðstofu. Eldhúsinnrétting mjög rúmgóð með efri og neðri skápum og skúffum. Flísalagt er á milli skápa og lýsing.
Ofn í vinnuhæð, helluborð og vifta, pláss í innréttingu fyrir uppþvottavél og frístandandi ísskáp.
Þvottahús/búr: Inn af eldhúsi er þvottahús sem nýtist einnig sem búr. Þar er tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Baðherbergi: Rúmgott baðherbergi með góðri baðinnréttingu, neðri skápum og skúffum ásamt efri skáp, spegli og lýsingu fyrir ofan. Sturtuklefi og flísar á gólfi og veggjum.
Bílastæði: Sérmerkt bílastæði í lokuðum bílakjallara.
Geymsla: Sérgeymsla í kjallara hússins.
Sameign: Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er á jarðhæð. Sameiginleg bílastæði eru við húsið ásamt rafhleðslustöðvum.
Eignin er afar vel staðsett í nálægð við fjölbreytta þjónustu, leikskóla og grunnskóla. Stutt er í helstu stofnleiðir og golfvöllurinn Korpa er í næsta nágrenni. Falleg náttúra umlykur svæðið og fjölbreyttar göngu- og hjólaleiðir eru í boði, meðal annars meðfram sjávarsíðunni, um Geldinganes og í átt að Úlfarsfelli. Svæðið býður því upp á fjölbreytta möguleika til útivistar og afþreyingar.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald kr. 3.800.- kr. af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður lánastofnunar - mismunandi eftir lánastofnunum.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. samningi.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sanneynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.