Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Halla Unnur Helgadóttir
Elín Urður Hrafnberg
Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse
Herdís Valb. Hölludóttir
Ellert Bragi Sigurþórsson
Daði Runólfsson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1985
svg
214,4 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

-- Eignin er seld og því fellur fyrirhugað opið hús niður--

Gimli fasteignasala og Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse S:792-7576 kynna:  Klettagötu 8, 220 Hafnarfjörður. Vandaða og rúmgóða efri séðhæð í frábærri staðsetningu ásamt stórum bílskúr í tvíbýli við Klettagötu í Hafnarfirði. Fallegar og bjartar stofur með útgengt á stórar suðursvalir, þrjú svefnherbergi, stórt bað og gestarsnyrting, hjónasvíta með fataherbergi, gott eldhús og innangengt búr/þvottahús. Góðar svalir til suðurs/vesturs og gróin lóð með verönd í austur/suður og heitum potti, stór bílskúr sem bíður upp á marga möguleika. Eign sem vert er að skoða,


Birt stærð eignarinna samkv. Þjóðskrá Íslands er 214,4 m2 og þar af er bílskúr 42,3 m2.

Bókið skoðun hjá Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse  í síma 7927576, eða gudmunda@gimli.is

Nánari lýsing eignar:
Gengið er upp steyptar tröppur upp á  rúmgóðar vestur svalir.
Forstofa er flísalögð með fataskáp. Gólfhiti er í forstofu.
Svefnherbergi er inn af forstofu með góðum glugga og fataskáp.
Gestasnyrting með flísum á veggjum og gólfi. Nýleg innrétting og gólfhiti.
Borðstofa, setustofa og sjónvarpshol myndar eitt opið rými sem er einstaklega bjart og fallegt, með stórum gluggum í þrjár áttir. Frá stofu er útgengt út á stórar suðursvalir. 
Eldhús er með nýlegri innréttingu (2020) frá Brúnás sem er afar rúmgóð, falleg og vel hönnuð með frábærri vinnuaðstöðu og góðum borðkrók við glugga. Hægt er að ganga inn í eldhús frá borðstofu og frá holi.
Þvottahús er inn af eldhúsi með góðri innréttingu sem var uppfærð á sama tíma og eldhús. Nýlegar korkplötur með vinyl eru á gólfum í eldhúsi og þvottahúsi. Frá þvottahúsi er útgengt út á vandaða sólpalla þar sem er heitur pottur. 
Hjónaherbergið er stórt og bjart með góðum gluggum og útgengt á vestursvalir. Inn af hjónaherbergi er rúmgott fataherbergi með glugga, nýta má þetta herbergi sem barnaherbergi.
Svefnherbergi er inn af stofu og er mjög rúmgott. Þetta rými var áður nýtt sem sjónvarpsherbergi en er í dag nýtt sem svefnherbergi, mögulegt er að skipta rýminu í tvö herbergi. Kamína er í rýminu.
Baðherbergi er flísalagt með góðri innréttingu, sturtu og baðkari.
Hlýlegt viðarparket er á stofum og herbergjum.

Á neðri hæð er 42,3 fermetra bílskúr og 8 fermetra geymsla innst í skúrnum, samtals 50,3 fermetrar. 
Bílskúrinn er mjög rúmgóður með gluggum og góðri vinnuaðstöðu. Bílaplan fyrir framan bílskúr er upphitað og með tveimur bílastæðum. Að auki er köld útigeymsla sem tilheyrir eigninni.

Eigninni hefur ávalt verið vel viðhaldið. Samkvæmt upplýsingum frá seljendum var þak endurnýjað 2023. Allar innihurðar eru nýjar og skipt hefur verið um flest gler í gluggum. Innréttingar í eldhúsi og þvottahúsi endurnýjað 2020 ásamt gólfefni. Sett var hurð úr þvottahúsi út á sólpalla og gerð glæsileg aðstaða með heitum potti á baklóð.

Húsið er staðsett innst í litlum botnlanga við Klettagötu í vesturbæ Hafnarfjarðar. Segja má að gatan sé falin perla, staðsetningin er einstök við friðað hraun (Hleinar) og í nálægð við sjó og fjöru. Útivistasvæðið Víðistaðatún er steinsnar frá, leikskóli hinumegin við götuna sem og tveir grunnskólar. Róluvöllur er í botnlanganum. Sundhöll Hafnarfjarðar svo gott sem í bakgarðinum og miðbær Hafnarfjarðar í stuttu göngufæri.
Eignin hefur fengið gott viðhald og vandað efnisval.

Eignin Klettagata 8 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 225-1351, birt stærð 214.4 fm. Nánar tiltekið eign merkt 02-01, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Nánari upplýsingar veitir: Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 7927576, tölvupóstur gudmunda@gimli.is eða gimli@gimli.is

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur: gimli@gimli.is

Gimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasölu

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3800,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala
 

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni.

Gimli gerir betur...

img
Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Gimli fasteignasala
Skipholt 35, 105 Reykjavík
Gimli fasteignasala

Gimli fasteignasala

Skipholt 35, 105 Reykjavík
phone
img

Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse

Skipholt 35, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
24. apr. 2024
110.750.000 kr.
118.000.000 kr.
214.4 m²
550.373 kr.
20. des. 2021
66.550.000 kr.
93.000.000 kr.
214.4 m²
433.769 kr.
4. okt. 2016
42.350.000 kr.
57.500.000 kr.
214.4 m²
268.190 kr.
6. sep. 2007
33.400.000 kr.
41.500.000 kr.
237.3 m²
174.884 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Gimli fasteignasala

Gimli fasteignasala

Skipholt 35, 105 Reykjavík
phone

Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse

Skipholt 35, 105 Reykjavík