Opið hús: Grænahlíð 10, 105 Reykjavík. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 20. október 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.
Lýsing
Íbúðin skiptist í fjögur svefnherbergi og stóra stofu sem hægt er að stækka enn frekar með því að fjarlægja léttan vegg, þar sem parket er undir honum. Tvennar svalir sem snúa til suðurs og austurs opna þessa glæsilegu eign enn frekar. Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum árin og í sameign er fallegur garður.
Nánari lýsing eignar
Forstofa Gengið er inn af stigapalli inn í forstofuna með fataskáp og parketi á gólfi.
Geymsla inn af forstofunni sem hægt er að nýta einnig sem þvottahús og eru lagnir til staðar.
Stofa/borðstofa rúmgóð og björt með parketi á gólfi. Útgengt er út á suður svalir út stofunni. Hluti stofunnar hefur verið gerður að herbergi og er auðvelt að fjarlægja hann þar sem parket er undir veggnum.
Svefnherbergi sem er hluti af stofunni/borðstofunni með rennihurð og parketi á gólfi.
Eldhús er opið að hluta við stofu, efri og neðri skápar með flísum á milli, tengi fyrir uppþvottavél, eldavél, gufugleypir, gott borðpláss og parket á gólfi.
Svefnherbergisgangur með parketi á gólfi.
Hjónaherbergi rúmgott með opnu fatarými og parket á gófi. Útgengt er út á austur svalir úr hjónaherbergi.
Svefnherbergi með fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi með fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi með baðkari með sturtuaðstöðu, snyrtileg innrétting, gluggi og flísalagðir veggir og gólf.
Íbúðinni fylgir tvö geymslurými niðri. Annað er undir stiga sem liggur niður í kjallara og hitt er lítil geymsla í kjallaranum.
Þvottahús er í sameign þar sem hver og einn er með sértengi fyrir þvottavél. Opnanlegur gluggi.
Helstu framkvæmdir á húsinu:
-2003: Rafmagnstafla í sameign endurnýjuð.
-2006: Nýjar hellur og hitalögn norðan við húsið.
-2008: Epoxy sett á þvottahús, pípulagnir endurnýjaðar þar og vaskur settur.
-2010: Stigagangur í kjallara málaður.
-2014: Þak endurnýjað með Pvc-dúk og þakkantur lagaður.
-2015: Vatnslögn frá baðkari endurnýjuð.
-2017: Endurmúrun og allt húsið silonborið.
-2018: Allir gluggar og tréverk að utan lagað, skipt um flestallt gler.
-2018-19: Húsið málað að utan.
-2023: Frárennsli endurnýjað og drenlögn lögð allan hringinn. Hellulagt í garðinum.
-2024: Svört filma sett á eldhúsinnréttingu.
-2026: Tröppur við inngang lagfærðar, rafmagnshitaþráður settur í og upp að útidyrum.
Grænahlíð 10 er í vinsælu, grónu hverfi miðsvæðis, þar sem stutt er í leik-, grunn- og framhaldsskóla, verslanir og þjónustu. Gatan er kyrrlát og í næsta nágrenni við öflugt íþróttastarf og falleg útivistarsvæði í boði við klambratún og Öskjuhlíð. Gott aðgengi er að helstu umferðaræðum og stutt í almenningssamgöngur með tengingum um allt höfuðborgarsvæðið.
Hér er um að ræða einstakt og sjaldgæft tækifæri fyrir þá sem vilja eignast rúmgóða fjölskyldueign með fjórum svefnherbergjum í klassískum arkitektúr á eftirsóttum stað í hjarta Reykjavíkur, þar sem þjónusta, samgöngur og útivist fara saman.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.