Lýsing
Hjaltabakki 4 – falleg og vel skipulögð fjögurra herbergja íbúð á 2. hæð. Íbúðin hefur verið endurnýjuð að miklu leyti. Gott og opið miðrými er í íbúðinni með eldhúsi, borðstofu og stofu. Útgengt er á suðursvalir úr borðstofu. Snyrtilegt baðherbergi og þrjú rúmgóð svefnherbergi.
Nánari upplýsingar hjá Jens Magnúsi í síma 893-1984 eða á netfanginu magnus@eignaland.is.
Nánari lýsing:
Forstofa / hol rúmgott og parketlagt
Eldhús með nýlegri innréttingu og tækjum,(spanhella, sjálfhreinsandi ofni og uppþvottavél) endurnýjað 2020
Baðherbergi er flísalagt, snyrtileg og rúmgóð innrétting, sturtuklefi. Á baðherberginu er tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Stofa er björt og er sameiginleg eldhúsi og borðstofu Útgengt á suðursvalir með útsýni yfir snyrtilegan og skjólgóðan garð með leiktækjum.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með góðum fataskápum.
Barnaherbergi eru tvö, bæði mjög rúmgóð og með fataskápum.
Gólfefni: Endurnýjað gólfefni á íbúðinni að baðherbergi undanskildu.
Þvottahús: Stórt og snyrtilegt þvottahús og þurrkherbergi er í sameign.
Geymsla: sérgeymsla 8,9 fm í sameign.
Sameign: þvottaherbergi. Hjóla og vagnageymsla auk þvottahúss.
Húsið hefur verið mikið endurnýjað á undanförnum árum.
Um er að ræða fallega og rúmgóða íbúð í fjölskylduvænu hverfi þar sem stutt er í sundlaug, skóla, leikskóla og alla helstu þjónustu.
Allar nánari upplýsingar og bókanir í skoðun eru hjá fasteignasala:
Jens Magnús Jakobsson, sími 893-1984 eða magnus@eignaland.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignaland fasteignasla bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda samkvæmt gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.