Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Svavar Friðriksson
Sigríður Rut Stanleysdóttir
Vista
fjölbýlishús

Rúgakur 3

210 Garðabær

117.000.000 kr.

818.754 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2311385

Fasteignamat

108.100.000 kr.

Brunabótamat

93.650.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2008
svg
142,9 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sérinngangur
svg
Hjólastólaaðgengi
svg
Bílastæði
svg
Lyfta
svg
Laus strax
Opið hús: 26. október 2026 kl. 17:45 til 18:15

Opið hús: Rúgakur 3, 210 Garðabær, Íbúð merkt: 103. Eignin verður sýnd mánudaginn 26. október 2026 milli kl. 17:45 og kl. 18:15. *** Verið velkomin. Ragnar S: 844-6516 ***

Lýsing

Ragnar Guðmundsson S: 844-6516 löggiltur fasteignasali hjá TORG fasteignasölu kynnir: Rúmgóð 3ja herbergja íbúð í snyrtilegu fjölbýlishúsi að Rúgakri 3b í Akrahverfi, Garðabæ, með sérinngangi frá fyrstu hæð. Eignin er skráð 142,9 fm. og skiptist í forstofu, Hjónasvítu með fataherbergi, rúmgott svefnherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi, eldhús, mjög bjart og rúmgott alrými með samliggjandi stofum. Frá stofum er útgengt á stórar svalir sem snúa til suðvesturs.
Húsið er staðsett í rólegum botnlanga, byggt árið 2008, álklætt og viðhaldslítið með fallega frágenginni lóð. Hellulögð stétt og malbikuð bílastæði fyrir framan hús. Sérgeymsla er á jarðhæð sameignar ásamt sérmerktu bílastæði í lokuðum bílakjallara.
Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veita Ragnar fasteignasali  í S: 844-6516 eða ragnar@fstorg.is

Nánari lýsing:
Forstofa/anddyri: Komið er inn í flísalagða forstofu með þreföldum loftháum fataskáp.
Eldhús: Falleg innrétting með eikar áferð og góðu skápaplássi. Bakaraofn í vinnuhæð, helluborð, gufugleypir, kæliskápur og uppþvottavél. Eikarparket á gólfi.
Stofa og borðstofa: Stofurnar eru í opnu og björtu alrými með stórum suðurgluggum og eikarparketi á gólfi. Frá stofunni er útgengt á mjög rúmgóðar svalir með fallegu útsýni til suðvesturs.
Hjónasvíta: Rúmgott hjónaherbergi með fataherbergi. Eikarparket á gólfi.
Svefnherbergi: Að undanskildu hjónaherbergi er annað mjög rúmgott svefnherbergi með eikarpaketi á gólfi og loftháum fjórföldum fataskáp.
Baðherbergi: Rúmgott baðherbergi búið viðarinnréttingu með handlaug, neðri skúffum og skápum, upphengdum efri skápum. Upphengt salerni, baðkar og ''walk in'' sturta með hertu gleri. Flísalagt í hólf og gólf.
Þvottaherbergi: Innan íbúðar er þvottaherbergi með hvítri innréttingu, vinnuaðstaða og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi.
Sérgeymsla: Mjög rúmgóð sérgeymsla er staðsett á jarðhæð, skráð 24,5 fm.

Um er að ræða fallega eign á eftirsóttum stað í Akrahverfi Garðabæjar þar sem stutt er í leikskóla (Akrar), grunnskóla (Hofsstaðaskóla), Fjölbrautaskóla Garðabæjar, verslun og bakarí.
Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veita Ragnar fasteignasali  í S: 844-6516 eða ragnar@fstorg.is

Fáðu frítt söluverðmat fyrir eignina þína hér.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir
og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
13. des. 2010
33.450.000 kr.
30.000.000 kr.
142.9 m²
209.937 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone