Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1928
svg
144,1 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús

Lýsing

FastVest fasteignasala og Ragga Rún lögg.fasteignasali kynnir: HÁTEIGUR 2 - Minni Borg 

Sérlega fallegt og mikið endurnýjað 129,1 fm einbýlishús á þremur hæðum, kjallari hæð og ris, á rólegum og fallegum stað með útsýni útá sjó. Suðursólpallur og c.a. 15 fm geymsluskúr.Í húsinu eru 3 svefnherbergi, tvö í risi og 1 í kjallara með rúmgóðu fataherbergi. Tvö baðherbergi er í húsinu, annað í risi og hitt í kjallara.


HÆÐ 49,7 fm: Gengið er inn á miðhæð hússins sunnanmegin. Forstofa með skápum. Teppalagður stigi upp. Borðstofa stofa og eldhús með fljótandi parket á gólfum.
Eldhús Hvítinnrétting flísar á milli skápa. stigi niður í kjallara.
RIS 29,7 fm: Hæðin er undir súð. Sjónvarpshol, (nýtanlegt sem herbergi nr 3). 2 rúmgóð svefnherbergi bæði með skápum. 
Baðherberbergi endurnýjað 2025. Flísar á gólfi, flísaþiljur á veggjum, "walk in" sturta, innrétting og upphengt wc. 
KJALLARI 49,7 fm: Forstofa flísar, inngangur í vestur 
Þvottahús parket á gólfi, góð innrétting með vaski og vélum í vinnuhæð. Hol flísar, rafmagnstafla, stigi upp í eldhús,
Baðherbergi flísar á gólfi og flísaþiljur á veggjum  innrétting, sturta.
Rúmgott Hjónaherbergi með fataherbergi innaf, parket á gólfum. (möguleiki að breyta fataherbergi í svefnherbergi).

Stór suðurverönd byggð með gagnvarinni furu. Forsteypar einingar á milli lóða á 2 vegu til að jafna út lóðina  og gert ráð fyrir heitum potti. 
Geymsluskúr í enda á innkeyrslu c.a.15 fm  Klætt m/Steni á kjallara.
Klæðning hússins er úr lituðu áli og búið er að einangra og klæða sökkul með grófu steni.

Endurnýjað af eigendum á síðstu 6 árum. 
  • Heita og Kaldavatnsinntök endurnýjuð (2026)
  • Baðherbergi í risi (2025)
  • Neysluvatnslagnir hafa verið endurnýjaðar að mestu.(eldhús og efra baðherbergi. 2025)
  • Sólpallur (2023/4) Settar forsteyptar einingar á milli 2ja lóða.
  • Gluggar allir endurnýjaðir (2022)
  • Miðhæð gerð rúmlega fokheld og m.a. endurnýjað ofnar, loft, veggi og gólfefni(2020)
  • Rafmagn hefur verið endurnýjað að mestu 
  • Parket.

Nánari upplýsingar veitir:
Ragnheiður Rún Gísladóttir löggiltur fasteignasali fastvest@fastvest.is  / sími 861-4644


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. FastVest fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.  Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.  Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.  Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

FastVest með þér alla leið

FastVest fasteignamiðlun

FastVest fasteignamiðlun

Akranes, Borgarnes og Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
4. sep. 2024
54.450.000 kr.
70.000.000 kr.
10101 m²
6.930 kr.
25. jan. 2012
54.450.000 kr.
23.400.000 kr.
10101 m²
2.317 kr.
31. maí. 2013
17.600.000 kr.
24.300.000 kr.
129.1 m²
188.226 kr.
27. mar. 2013
17.600.000 kr.
23.500.000 kr.
129.1 m²
182.029 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
FastVest fasteignamiðlun

FastVest fasteignamiðlun

Akranes, Borgarnes og Reykjavík
phone