Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Björn Guðmundsson
Berglind Jónasardóttir
Greta Huld Mellado
Vista
fjölbýlishús

Smárahlíð 14 - 301

603 Akureyri

51.900.000 kr.

561.688 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2150604

Fasteignamat

46.750.000 kr.

Brunabótamat

50.150.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1979
svg
92,4 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

    

Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala

Smárahlíð 14 - 301

Virkilega rúmgóð þriggja herbergja íbúð á efstu hæð með sér þvottahúsi innan íbúðar á vinsælum stað í Glerárhverfi, í næsta nágrenni við t.a.m. Glerárskóla og HSN í Sunnuhlíð. Eignin er samkvæmt HMS samtals 92,4 fm. 

**Frábær fyrstu kaup**
**Eignin er í leigu í um það bil ár til viðbótar því kjörið tækifæri fyrir þá sem vilja halda áfram að leigja eignina út**


Íbúðin skiptist í anddyri, hol, fjölskyldurými, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.

Anddyri og hol er með parket á gólfi
Fjölskyldurými er skráð á teikningu en þar er parket á gólfi og tilvalinn staður fyrir t.d. sjónvarpsrými, leikrými eða skrifstofu. 
Stofa er björt og rúmgóð með parket á gólfi og þaðan er gengið út á svalir til suðurs með fallegu útsýni. 
Eldhús er með parket á gólfi, upprunaleg innrétting og eldhúskrókur í enda þess. 
Þvottahús er afar rúmgott og er inn af eldhúsi en rennihurð skilur rýmin að. Þar er málað gólf og miklir möguleikar fyrir góða innréttingu og frekara geymslurými sem dæmi. 
Baðherbergi er upprunlegt að mestu, þar eru flísar á gólfi, baðkar, salerni, og lítil innrétting í kringum vask.
Svefnherbergin eru tvö, bæði nokkuð rúmgóð með parket á gólfi.

Sér geymsla er í sameign en þar er einnig sameiginleg vagna- og hjólageymsla.

Annað:
-Nýlegt parket á íbúðinni
-Skipt um gler og opnanleg fög árið 2022
-Ljósleiðari tengdur
-Búið að skipta um rafmagnstöflu í íbúð
-Búið að skipta um dyrasíma
-Húsið málað 2025
-Þak hússins yfirfarið fyrir nokkrum árum
-Sér á innihurðum
-Virkilega skemmtileg staðsetning, stutt í helstu þjónustu og engin gata að þvera fyrir börn í grunnskóla
-Eignin er í leigu í um það vil ár til viðbótar. Kjörið fyrir þá sem vilja halda áfram að leigja hana út. Einnig er hægt að semja við leigjandan um afhendingu fyrr ef svo ber undir

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 

Frekari upplýsingar:
olafur@byggd.is
greta@byggd.is
halla@byggd.is
bjorn@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 


 

Byggð fasteignasala

Byggð fasteignasala

Skipagata 16, 600 Akureyri
phone
Byggð fasteignasala

Byggð fasteignasala

Skipagata 16, 600 Akureyri
phone