Opið hús: Fífurimi 2, 112 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 01 02. Eignin verður sýnd laugardaginn 28. nóvember 2026 milli kl. 12:30 og kl. 13:00.
Lýsing
Um er að ræða bjarta, fallega og vel skipulagða íbúð í fjögurra íbúða fjölbýlishúsi á góðum stað í Grafarvogi. Eignin hefur verið mikið endurnýjuð að innan árið 2026, meðal annars eldhús, baðherbergi og gólfhiti. Úr stofu er útgengi út á um 29 fm afgirta og hellulagða suðvesturverönd með heitum potti, þar sem hægt er að njóta útiveru í góðu skjóli. Birt stærð eignar samkvæmt fasteignaskrá er 74,4 fm. Sérmerkt bílastæði fylgir eigninni.
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAX
Eignin skiptist í anddyri, rúmgott og bjart alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu, hjónaherbergi, baðherbergi og þvottahús/geymslu. Auk þess er sameiginleg vagna- og hjólageymsla í húsinu.
Nánari lýsing eignar:
Anddyri: Gengið er inn í sameiginlegan inngang á jarðhæð og er inngangur í íbúðina til hægri. Í anddyri er svartur fataskápur og parket á gólfi.
Stofa / borðstofa: Rúmgott, bjart og opið alrými þar sem stofa, borðstofa og eldhús mynda skemmtilega heild. Góðir gluggar veita rýminu náttúrulega birtu. Frá stofu er útgengi út á um 29 fm afgirta suðvesturverönd með heitum potti. Parket er á gólfi.
Eldhús: Fallegt og endurnýjað eldhús frá árinu 2026 með nýrri innréttingu frá IKEA í svörtum og brúnum litum. Eldhúsið er opið við stofu og borðstofu og þar er eyja með skúffum, spanhelluborði og bakarofni. Tvöfaldur ísskápur og innbyggð uppþvottavél eru í eldhúsinu. Nýjar flísar eru á vegg við innréttingu ásamt nýjum vaski og blöndunartækjum. Parket er á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með svörtum fataskápum og teppi á gólfi.
Baðherbergi: Glæsilegt og endurnýjað baðherbergi frá árinu 2026 með fallegum flísum frá Álfaborg á veggjum og gólfi. Brún baðinnrétting með vaski, rúmgóð walk-in sturta með innbyggðum blöndunartækjum frá Grohe og upphengt salerni frá Grohe.
Þvottahús / geymsla: Á samþykktri teikningu er rýmið skráð sem geymsla en búið er að færa þvottahúsið þangað inn, vinnuborð, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, gólfhitastýringar. Parket á gólfi.
Verönd: Frá stofu er gengið út á um 29 fm afgirta og hellulagða suðvesturverönd. Þar er heitur rafmagnspottur og skjólveggir sem skapa notalega aðstöðu til útiveru. Hlið er á girðingunni með aðgengi út á lóðina.
Sameign: Snyrtilegur sameiginlegur inngangur og stigagangur. Á jarðhæð er sameiginleg vagna- og hjólageymsla.
Húsið: Fjögurra íbúða fjölbýlishús með tveimur íbúðum á hvorri hæð. Gólfhiti er í íbúðinni.
Lóð og bílastæði: Húsið stendur á 756 fm sameiginlegri lóð með grasflötum og steyptri gangstétt að húsinu. Bílastæði eru við húsið og fylgir eigninni sérmerkt bílastæði.
Að sögn eiganda hefur eignin verið mikið endurnýjuð að innan á árinu 2026, meðal annars:
* Eldhús: Ný IKEA-eldhúsinnrétting, innbyggð uppþvottavél, nýtt spanhelluborð og bakarofn, nýjar veggflísar, vaskur og blöndunartæki.
* Baðherbergi: Með nýjum flísum frá Álfaborg á veggjum og gólfi, nýrri innréttingu með vaski og tækjum, innbyggðum blöndunartækjum í sturtu og upphengdu salerni.
* Gólfhiti: Gólfhiti settur í íbúðina.
* Þvottaaðstaða: Þvottaaðstaða færð yfir í geymslurými.
* Gólfefni: Nýtt parket í íbúðinni frá Álfaborg.
* Gluggatjöld: Nýjar gardínur í stofu og hjónaherbergi.
* Verönd: Nýir skjólveggir og heitur pottur.
Fífurimi 2 er vel staðsett í Grafarvogi þar sem stutt er í fjölbreytta þjónustu, skóla, íþróttir og útivist. Í nágrenninu eru leik-, grunn- og framhaldsskólar, íþrótta- og afþreyingarmiðstöðin Egilshöll, golfvöllurinn á Korpúlfsstöðum og verslunarmiðstöðin Spöngin. Hér er því um að ræða áhugaverða eign fyrir þá sem vilja búa í rólegu og fjölskylduvænu umhverfi með góða þjónustu í nágrenninu.
Mikið endurnýjuð og vel skipulögð íbúð með rúmgóðum suðvesturpalli, heitum potti og sérmerktu bílastæði. Eign sem vert er að skoða!
Allar nánari upplýsingar veitir Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteigna- og skipasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í síma 893-3276 eða holmar@helgafellfasteignasala.is.
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 92.380,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.