Opið hús: Eyjabakki 8, 109 Reykjavík, Íbúð merkt: 04 01 02. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 21. júlí 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Skipting eignar: Anddyri, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, stofa, eldhús, gangur, þvottahús og geymsla.
Nánari lýsing:
Anddyri. Stór og björt stofa með suðursvölum.
Eldhús með fallegri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél og góður borðkrókur við glugga, eldhús var endurnýjað fyrir ca 10 árum.
Inn af eldhúsi er mjög gott þvottahús með hvítri innréttingu ásamt góðu borðplássi sem nýtist vel. í sumum tilfellum hefur þvottahúsinu verð breytt í svefnherbergi.
Svefnherbergisgangur með fataskáp.
Hjónaherbergi er rúmgott með stórum fataskáp.
Tvö barnaherbergi með fataskáp.
Flísalagt baðherbergi með ljósri innréttingu ásamt baðkari með sturtuaðstöðu og handklæðaofni.
Í kjallara er sérgeymsla, þvottahús ásamt sameignlegri hjóla- og vagnageymslu.
Upplýsingar: Að sögn eiganda hefur húsinu verið vel við haldið í gegnum tíðina
2016 - 2017: var þakjárn endurnýjað, húsið klætt og málað að utan ásamt því að svalahandrið löguð.
2021 – Endurbætur á stigaganginum. Nýtt teppi lagt, handrið máluð, veggir málaðir, gólf í kjallaranum máluð og lökkuð.
2023 – var tréverk málað, farið yfir gler í húsinu og skipt um þar sem þurfti og þakrennur endurnýjað að hluta
2024 – Dyrasímar með myndavél settir upp hjá öllum íbúðum á stigaganginum.
2025 – Drenlagnir hreinsaðar og fóðraðar í allri blokkinni.
2025 - Skipt um alla ofna í íbúðinni.
2026 – Hleðslustöðvar settar upp fyrir rafbíla fyrir íbúa í blokkinni.
Umhverfi: Bílastæðin eru staðsett fyrir framan blokkina en leiksvæðið með rólum og grasflöt er staðsett fyrir miðju hússins. Staðsettning eignarinnar er góð og er því stutt í sem dæmi Mjódd þar sem öll helsta þjónusta er. Stutt í strætó, stutt í gönguleiðir sem dæmi Elliðaárdalinn, stutt í skóla,leikskóla og Breiðholtslaug.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður